Síða 1 af 1

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 2. Feb. 2013 13:49:06
eftir Agust

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 2. Feb. 2013 15:50:24
eftir Björn G Leifsson
[quote=Agust]Er þetta ekki snilld... ?

http://www.multiplex-rc.de/fileadmin/co ... ofi-tx.pdf[/quote]

Skal svara spurningunni þegar ég fæ hana í hendurnar. Maður verður eiginlega að handfjatla gripinn til að vita hvort hann virkar fyrir mann.

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 2. Feb. 2013 22:45:44
eftir Haraldur
Getur verið, en útlitið er ekki að selja stýringuna. Ég hef aldrei verið hrifin af Multiplex. Klunnalegar og stórar stýringar hjá þeim. Þegar maður er með þetta um hálsin þá er eins og maður hafi hengt stjórstöð landsvirkjunar fyrir framan sig. :-(

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 3. Feb. 2013 02:42:57
eftir Sverrir
Gott að sjá að Dieter á enn fjarstýringuna!

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 3. Feb. 2013 07:04:49
eftir Agust
Það vantar greinilega AI í fréttavefinn sem vísar sjálfvirkt á staði þar sem menn hafa verið að fjalla um það sama :)

En varðandi þessa fjarstýringu þá finnst mér það bera vott um mikla skynsemi hönnuðanna að geta hugsað út fyrir kassann eins og sagt er. Hafið þið tekið eftir því hve flestallar fjarstýringar eru líkar. Nánast eins og þær séu steyptar í sama mót. Kassinn úr krómuðu plasti, fullt af rifum á framhlið sem hafa ekki annan tilgang en að safna skít, og til að kóróna vitleysuna, þá eru á vel flestum (ekki öllum) fjarstýringum plat skrúfuhausar sem eiga að tákna skrúfur til að halda stýripinnaeiningunni á sínum stað. Tökum samlíkingu frá alvöru SLR myndavélum, eins og Canon, Nikon, o.s.frv. Myndavélarnar eru svartar og á þeim eru engar platskrúfur erð skítsöfnunarrifur.

Á Multiplex er með það sem kallast ergonomisk hönnun eins og á t.d. alvöru myndavélum. http://en.wikipedia.org/wiki/Human_fact ... ergonomics
Framhliðin er slétt og ekki með óþarfa skrauti. Hún er svört en ekki krómuð. Skjárinn (sem líka er fyrir fjarmælingu frá flugvélinni) er efst, og honum má halla. Trimmstillin hafa verið gerð aðeins aðgengilegri, o.s.frv.

Þetta er bara útlitið, en það sem skiptir ekki minna máli er það sem er bak við andlitið.

Rafhlaðan endist í 25 klukkustundir og er hægt að hlaða sendinn um USB tengi, eins og farsímann. Hvers vegna datt ekki fleiri fjarstýringahönnuðum svona sjálfsagður hlutur í hug?

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 4. Feb. 2013 20:15:34
eftir Gauinn
Er 21öldin komin?

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 5. Feb. 2013 01:34:38
eftir Ingþór
[quote=Agust]Það vantar greinilega AI í fréttavefinn sem vísar sjálfvirkt á staði þar sem menn hafa verið að fjalla um það sama :)[/quote]

Hver þarf AI þegar maður er með SI (Sverrir Intelligence)?

Re: Snilldarhönnun á fjarstýringu...

Póstað: 5. Feb. 2013 01:43:24
eftir Sverrir
Haha, fyrir aðeins 999.999.999 kr. geturðu fengið afnot af þínum eigin SI! ;)