Síða 1 af 1
Re: Epoxyblöndunarílát...
Póstað: 24. Nóv. 2006 00:30:58
eftir Björn G Leifsson
Ég keypti stauk af einnota eggjabikurum í Rekstrarvörum. Þeir eru úr þunnu Plýstýren og það er svo mikið af þeim í svona stauk að það endist nokkra vetur.
Önnur hugmynd er að nota skálarlaga botninn á tómri bjórdós. EF þú ert í vandræðum með að tæma bjórdósir þá kem ég gjarnan og hjálpa til við það...
Re: Epoxyblöndunarílát...
Póstað: 24. Nóv. 2006 00:40:49
eftir Sverrir
Svo má líka benda á einnota staupglös
Re: Epoxyblöndunarílát...
Póstað: 25. Nóv. 2006 01:08:36
eftir Haraldur
Fyrir eða eftir notkun, hikk!
Re: Epoxyblöndunarílát...
Póstað: 25. Nóv. 2006 17:16:24
eftir Gaui
Fyrir fleiri árum en ég vil muna fann ég hrúgu af plastbotnum undir pínulitla blómapotta. Þessa botna er ég búinn að nota síðan. Kosturinn við þá er að ég get beyglað þá til og brotið afganginn af epoxinu úr þeim:
Ég veit ekki hvort þessir botnar eru til einhversstaðar í blómabúðum í dag, en það væri vel þess virði að fá sér nokkra ef þeir finnast.
Re: Epoxyblöndunarílát...
Póstað: 25. Nóv. 2006 18:02:43
eftir Sverrir
Lok af ísboxum eru líka fín og má brjóta epoxyið af þeim eftir notkun.