Re: Flotflugkoma FMS - 20.maí 2013
Póstað: 20. Maí. 2013 23:20:16
Fjórir galvaskir þátttakendur voru mættir til leiks í kvöld, þrír á flugvélum og einn á skuttogara. Niðurstaða kvöldsins eftir að hafa þrætt alla Seltjörnina er að þar sé ekki bröndu að sjá, eins og þetta vídeó gefur reyndar sterklega til kynna!
Flugmennirnir létu þessar aðgerðir þó ekki trufla sig og skemmtu sér konunglega við hinar ýmsu flugkúnstir. Vind tók svo að lægja þegar leið á kvöldið og jókst þá fjörið hjá þeim flugbræðrum.
Steini tók sig svo til og flaug Seamaster af Seltjörn og upp á Arnarvöll með smá aðstoð frá Árna og Lincoln en Örn var einnig ómissandi í dyravarðarhlutverki sínu! Böðvar mætti hress eftir gott hlé frá flotfluginu og Maggi var að sjálfsögðu á sínum stað. Pétri kunnum við svo bestu þakkir fyrir að vera klár á björgunarskipinu.
Það þarf ekki að spyrja að því frekar en fyrri daginn að það er alltaf líf og fjör þegar menn hittast til að skemmta sér á Seltjörn og aldrei að vita nema við skellum öðru góðu kvöldi á með styttri fyrirvara þegar nær dregur sumri.