Síða 1 af 1

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 3. Sep. 2013 14:28:32
eftir Böðvar
Gömul vídeó klippa frá Flugsýningu Þyts Hamranesi 1991. Gestir sáu flugmódel af öllum stærðum og gerðum og einnig komu flugmenn á fullskala flugvélum í heimsókn.

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 3. Sep. 2013 14:34:22
eftir Sverrir
Glæsilegt! :)

Hvet alla sem eiga gamlar hreyfimyndir úr módelfluginu til að gera ráðstafnir og koma þeim á stafrænt form og helst á netið líka! Allt of mikið til af efni í skúffum flugmódelmanna sem má ekki verða gleymskunni að bráð!

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 3. Sep. 2013 19:10:59
eftir Haraldur
:/ ég þarf að fara að hysja upp um mig buxurnar og fara yfir þessa marga tíma myndskeið sem eru ofan í skúffu.

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 3. Sep. 2013 23:16:57
eftir Pétur Hjálmars
Þetta var mjög skemmtileg klippa Böðvar.

Það eru 22 ár liðin, en mér finnst eins árin séu mun færri.

Ég veit að þú átt líka eitthvað frá 1990 sýningunni sem er sú
stæsta sem flugmódelfélag hefur haldið fyrr og síðar.

Glæsilegt hjá þér .

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 4. Sep. 2013 03:33:17
eftir Böðvar
Jú Pétur það passar ég á upptökur í einhverri skúffunni, bæði frá 1990 og 1992 flugsýningunum

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 4. Sep. 2013 07:09:16
eftir Agust
[quote=Sverrir]Glæsilegt! :)

Hvet alla sem eiga gamlar hreyfimyndir úr módelfluginu til að gera ráðstafnir og koma þeim á stafrænt form og helst á netið líka! Allt of mikið til af efni í skúffum flugmódelmanna sem má ekki verða gleymskunni að bráð![/quote]


Svo er það möguleiki að búa til hreyfimyndir úr gömlum ljósmyndum og setja í safnið...

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 4. Sep. 2013 09:28:47
eftir einarak
Það vantar ekki áhorfendurna þarna, það er gaman að þessu

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 4. Sep. 2013 10:40:30
eftir Sverrir
[quote=Agust]Svo er það möguleiki að búa til hreyfimyndir úr gömlum ljósmyndum og setja í safnið...[/quote]
Hægt að gera margt vitlausara.

Re: Flugsýning Þyts á Hamranesi 1991

Póstað: 6. Sep. 2013 21:49:54
eftir Pétur Hjálmars
Ég reyni að komast á Fréttavefinn til að skoða, einu sinni í viku eða eða svo,
því mér finnst það oftast gaman.

Gaman Böðvar.
Flott hjá þér.

Ég hef ekki skoðun á öllum málum.

Mér finnst samt gaman af gömlum myndum og skoða áhuga manna áður fyrr,
þá sé ég best hverju ég hef misst af.

Þetta segir mér að fylgjast betur með nútíðinni,, ekki satt ?
Hvernig snýr þetta að öðrum ?