DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Agust »

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Haraldur »

Fleirri upplýsingar takk. Ekki bara hálkveðnar vísur. :-)

Þettar er eins og vélinn sem Knútur var með fyrir norðann.
Passamynd
Ólafur
Póstar: 539
Skráður: 19. Jún. 2007 09:18:59

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Ólafur »

Þessi var svifandi yfir okkur á menningarnótt núna siðast. Fór að skoða þetta magnaða tæki. Hver skyldi verðmiðinn vera á þessu.
Passamynd
Þórir T
Póstar: 837
Skráður: 17. Ágú. 2004 23:25:55

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Þórir T »

Veit ekki hvort þetta er eins, en amk hugmynd um verðið...
http://www.amazon.com/DJI-Phantom-Aeria ... B00AGOSQI8

Tæplega 500$
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Árni H »

Næs! :)
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Agust »

Þetta lækkaði um $200 í byrjun síðustu viku úr $680 í $480. Gripurinn lagði þá af stað frá http://www.bhphotovideo.com/c/buy/Shop- ... 4294255798 í NY og flaug hingað til lands í fyrrinótt.



Fasbók: https://www.facebook.com/groups/DJIGuys/


Gripurinn kemur með öllu sem til þarf, jafnvel LiPo rafhlöðu, hleðslutæki og sendi. Er með GPS og áttavita.

http://www.dji.com/product/phantom/
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Agust »

Menn hafa verið að nota DJI Phantom fyrir ýmiskonar breytingar og fikt. Meðal annars:

- Skjáflug FPV með sendi á 5,8 GHz.

- Nota sjálfstillandi rambalda (gimbal) til að ná stöðugri videómyndum.

- Skipta um viðtæki og sendi, t.d. yfir í 9 rása Optima viðtæki og Aurora 9 sendi til að ná mun meiri drægni, hafa möguleika á aukarásum og fá upplýsingar til baka um rafhlöðuspennu.

- Setja hærri koltrefjalappir í stað plastlappa til að fá betra pláss fyrir rambalda.

- Ýmislegt fleira sem t.d. má sjá á Fasbókarsíðunni eða hér: http://phantomguide.com/.


Sem sagt, þetta er tiltölulega ódýr búnaður "með öllu" sem hægt er að breyta og bæta.



Rambaldi er íslenska orðið fyrir gimbal: http://ordabanki.hi.is/wordbank/terminf ... stResult=0
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Agust »

Svo þetta hér...

Mynd
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
hrafnkell
Póstar: 247
Skráður: 10. Maí. 2010 15:58:22

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir hrafnkell »

Ég prófaði svona fyrir nokkrum vikum, fínasta græja og lítur voða fínt út með svona skel yfir öllu.

Veit samt ekki alveg hvort það sé hægt að þetta svífi eitthvað.. Sennilega ekki mikið betur en t.d. múrsteinn :)


Ertu kominn með græjuna í hendurnar?
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstur eftir Agust »

[quote=hrafnkell]


Ertu kominn með græjuna í hendurnar?[/quote]

Kom á sunnudagsmorgun með vél frá NY. Er í rólegheitum að skoða, setja saman (eiginlega þarf bara að hlaða batteríið, setja spaða á og lendingafætur - og síðan fínstilla með forriti í PC tölvu), og lesa um reynslu manna á netinu. Flaug svona grip í bakgarðinum heima í fyrra og gekk bara nokkuð sæmilega, enda mikil hjálp í GPS-inu og áttavitanum.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Svara