Við Mummi fórum upp í Hlíðarfjall í dag með Bixler2 og GoPro Hero3 að prófa okkur áfram með þetta setup. Það virkaði bara vel - bara smávegis jelloeffect vegna þess að proppurinn er ekki alveg í jafnvægi. Það verður lagað síðar. Þetta er náttúrulega bara tilraun - hvorki veður né landslag var í sínum besta gír í dag
Hlíðarfjall - 5.október 2013 - GoPro og Bixler2
Re: Hlíðarfjall - 5.október 2013 - GoPro og Bixler2
Flott hjá ykkur.
Re: Hlíðarfjall - 5.október 2013 - GoPro og Bixler2
Bara flott, og góður staður með flugstöð og allt :rolleyes:
Re: Hlíðarfjall - 5.október 2013 - GoPro og Bixler2
[quote=Óli.Njáll]Bara flott, og góður staður með flugstöð og allt :rolleyes:[/quote]
Já, flugstöðin er fyrir hendi en hins vegar er þarna hreinasti frumskógur af staurum og fánastöngum þannig að það er auðvelt at lenda í ógöngum. Það er alveg rétt hjá Magga að það styttist í opnun á skíðasvæðinu - snjólínan færist neðar og neðar þessa dagana.
Þegar ég var að ganga frá myndavélinni á Bixlerinn mínum veitti ég því athygli að hann var allur að losna upp á límingum eftir endilöngum skrokknum, enda hefur hann marga fjöruna sopið þessi. Bixlermenn - tékkið á skrokkunum, þ.e.a.s. límingunni aftan við mótorhúsið og aftur í stél
Kv,
Árni H

Það getur stundum verið erfitt að sjá Bixlerinn í svona skyggni - ætli maður fari ekki að spreyja með appelsínugulu fyrir veturinn?
- Björn G Leifsson
- Póstar: 2914
- Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45
Re: Hlíðarfjall - 5.október 2013 - GoPro og Bixler2
[quote=Árni H]Það getur stundum verið erfitt að sjá Bixlerinn í svona skyggni - ætli maður fari ekki að spreyja með appelsínugulu fyrir veturinn?
[/quote]
Það er ótrúlega áhrifaríkt að nota skær-appelsínugula liti. Þeir sjást mjög langt að í íslensku landslagslitunum. Spreyið er frekar dýrt og festist illa á frauðinu, þau sem ég hef prófað allavega. Ég hef notað appelsínugult, þunnt límband frá HK með mjög góðum árangri á nokkur flygildi Það styrkir líka. sést í kílómetra fjarlægð. Er einmitt með Bixler sem ég er búinn að "klæða" með svona límbandi og á bara eftir að koma í loftið.

"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
H.L. Mencken