WAF Super Cub

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Þá brast það á.
Svona bara til að staðfesta það og skuldbinda sig þá er hér mynd af smíðaborðinu í lok dags.

Mynd

Og svo er hérna "getnaðarvottorðið"

Mynd


Kannski er hér komin hugmynd að nothæfri skilgreiningu á "stóru flugvélalíkani":

>> Vélarhlífin, öðru nafni "Káflíngin" skal í frumgerð sinni, eins og hún kemur upp úr kassanum, geta umlukið efri hluta höfuðs á fullvöxnum karlmanni og passa að minnsta kosti eins og venjulegt höfuðfat<<

:D
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Offi »

Þetta líst mér á. Þetta var nógu tröllslegt að sjá í kassanum og spennandi að sjá hvernig þetta þróast! Sléttu dekkin verða pöntuð, er það ekki? ;)
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Gaui
Póstar: 3772
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Gaui »

Til hamingju Björn :D

Gaman að sjá að þú ert byrjaður. Segðu mér frá ef það er eitthvað sem þú vilt vita og heldur að ég hafi dottið um á undan þér.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Sverrir »

Ljómandi eins og maðurinn sagði :)

[quote=Offi]Þetta líst mér á. Þetta var nógu tröllslegt að sjá í kassanum og spennandi að sjá hvernig þetta þróast! Sléttu dekkin verða pöntuð, er það ekki? ;)[/quote]
Ég held ennþá að sé þægilegra, og ódýrara(fyrir Björn), að sannfæra frændann um að kaupa ný dekk á fullskala vélina ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3772
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Gaui »

[quote=Offi]Sléttu dekkin verða pöntuð, er það ekki?[/quote]
Gallinn við það er að módelið er í skalanum 1:3,85 og dekkin sem fylgja eru 5" í þvermál. Það eru til sérstök Piper Cub dekk, en þau eru annað hvort of lítil (4 1/4") eða of stór (5 5/8"). Líklega væri sniðugt að fá þessi stóru, þvi svona Súper Cubbar eru oft með dekk í yfirstærðum. En ef maður skoðar síðan þessi dekk vel, (http://www2.towerhobbies.com/cgi-bin/wt ... LXD800&P=7) þá kemur í ljós að þau seru líka með rákum :rolleyes:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Eða setja skrúfu gegnum öxulgatið, herða ró að, festa skrúfuna í borpatrónu, gefa í og nota sandpappír til að slípa niður munstrið í dekkjunum.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3772
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Gaui »

[quote=Björn G Leifsson]Eða setja skrúfu gegnum öxulgatið, herða ró að, festa skrúfuna í borpatrónu, gefa í og nota sandpappír til að slípa niður munstrið í dekkjunum.[/quote]
Það verður þá frekar lítið eftir af barðanum, því þessi dekk eru sérlega þunn og létt. Ég ætla alla vega ekki að hafa áhyggjur af þessu.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Stór dekk eins og þeir nota í Alaska

Mynd

Dekkin á fyrirmyndinni minni

Mynd
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Gaui]Til hamingju Björn :D

Gaman að sjá að þú ert byrjaður. Segðu mér frá ef það er eitthvað sem þú vilt vita og heldur að ég hafi dottið um á undan þér.[/quote]
Takk, ég var næstum búinn að hringja áðan... en svo las ég manjúalinn og fattaði... :D
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Árni H
Póstar: 1593
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: WAF Super Cub

Póstur eftir Árni H »

Sverrir - cowlingin fer þér nokkuð vel ;)
Svara