Síða 1 af 2
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 19. Des. 2006 23:02:39
eftir Sverrir
Allar gerðir af Bob Smith lími til, lítið við annað kvöld og náið í það sem ykkur vantar. Allar gerðir af sýrulími, sýrulím(gel) í túbum, de-bonder, epoxy, 5 mín og upp í 30 mín, og finish cure.
Opið að Malarhöfða 2 miðvikudagskvöldið 20.desember frá 20-22, nú er síðasta tækifærið til að versla fyrir jólin, vorum að taka upp nýjar vörur.
ModelExpress
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 20. Des. 2006 11:47:10
eftir Sverrir
Uss, þessir sölumenn leggja mikið á sig, aurskriður, flóð, fjúkandi umferðarskilti og biluð tollakerfi munu vera hluti af því sem Þröstur er búinn að vera að kljást við síðasta sólarhringinn, ætli límið og módelinn verði ekki mikið betri fyrir vikið

Vonandi verður ekki hamfaragjald lagt á vörurnar

Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 20. Des. 2006 17:31:54
eftir Ingþór
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 20. Des. 2006 21:08:16
eftir kip
Þetta er við hliðina á Melgerðismelum, afleggjarinn er steinsnar frá þessari brú. Það er svo hvasst núna á Akureyri að það var að brotna niður tré í garðinum sem stórbætti útsýnið út á fjörðinn. Spurning hvort völlurinn okkar á Melunum sé á floti?¿
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 20. Des. 2006 23:13:15
eftir Gaui
Ég sá í fréttunum áðan að hann er það ekki.
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 21. Des. 2006 13:46:30
eftir kip
Gott. Þú hefur ekki þurft fenjasleða til að komast í vinnuna?
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 21. Des. 2006 15:02:18
eftir Gaui
Það er sæmilega fært inn að Grísara og jafnvel inn að Syðra Felli, en ég ábyrgist ekki lengra.
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 21. Des. 2006 18:34:34
eftir Árni H
[quote=Gaui]Það er sæmilega fært inn að Grísara og jafnvel inn að Syðra Felli, en ég ábyrgist ekki lengra.[/quote]
Við verðum sennilega að lána vegagerðinni duggunarlítinn epoxydropa til að laga brúna svo við komumst að fljúga jóla/áramótaflugið!
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 21. Des. 2006 23:33:02
eftir kip
Við leigjum bara flugvél og lendum á melunum! Eina málið hvernig við komum módelunum um borð :S
Re: 19.12.2006 - Verslið fyrir jólin
Póstað: 22. Des. 2006 00:15:58
eftir einarak
[quote=kip]Við leigjum bara flugvél og lendum á melunum! Eina málið hvernig við komum módelunum um borð :S[/quote]
það hlítur að meiga fljúga þeim samsíða "actualnum"
