Síða 1 af 3

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 31. Maí. 2014 18:20:48
eftir Agust
Rafmagnið vinnur á:



Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 31. Maí. 2014 21:33:32
eftir Sverrir

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 31. Maí. 2014 23:39:05
eftir Agust
Bensínmótorinn er svo gott sem dauður, er bráðfeigur.

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 31. Maí. 2014 23:46:53
eftir Agust
Nú fer það ekki á milli mála. Airbus er kominn með mannbæra flugvél með rafmagnsmótor.




http://www.dailymail.co.uk/sciencetech/ ... years.html

http://spectrum.ieee.org/energywise/tra ... kes-flight

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 1. Jún. 2014 00:01:22
eftir Haraldur
Einn galli við svona stóra rafmagnsmótora er að það þarf stór og dýr batterí, sem kosta mikið og er erfitt að hlaða upp, því það þarf öflug og dýr hleðslutæki.
Bensínmótorar eru enn sem komið er ódýr kostur.

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 1. Jún. 2014 00:45:06
eftir einarak
Rafhlöðurnar eru alveg orðnar nógu góðar, og mótorarnir eru orðnir nógu kraftmiklir.
Hér er t.d. boðið upp á 310kw og 600 newton metra, það ætti að duga í eitthvað fullskala

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 1. Jún. 2014 00:53:35
eftir Haraldur
Sammála, mótorar og rafhlöður eru orðin mjög góð og það er reyndar nokkur ár síðan. Kostnaðurinn er hinsvegar hár á svona kraftmiklu dóti.
Upp að 4-5 cellum þá er þetta nokkuð viðráðanlegt. Allt stærra er dýrt. 3 cellur og niður er mjög hagstætt.
þ.e a.m.k. mín reynsla af þessu.

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 1. Jún. 2014 01:55:38
eftir Agust
Sjá myndband frá Sonex, tekið árið 2011:

http://www.sonexaircraft.com/research/e ... 42011.html

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 1. Jún. 2014 11:58:19
eftir einarak
Ég tók saman að ganni svona basic pakka í 50cc-60cc vél,
Þetta er svona top of the line pakki sem skv Flyinggiants á að skila svipuðu afli, rafmagn vs bensín..
Rafmagn:
Hacker mótor 410$
Hacker hraðastillir 230$
2x Turnigy 5000mah 6sellu, raðtengt í 12s - 134$

Samtals=774$

Bensínútgáfan:

DA-60 með standard muffler - 734$

Tek kanski saman einhvern low budget pakka á eftir, kína bensínmótor vs kína rafmagn til að sjá samanburðinn þar.

Re: 27% Ultimate Biplane með rafmagnsmótor

Póstað: 1. Jún. 2014 12:45:22
eftir Agust
[quote=einarak]Ég tók saman að ganni svona basic pakka í 50cc-60cc vél,
Þetta er svona top of the line pakki sem skv Flyinggiants á að skila svipuðu afli, rafmagn vs bensín..
Rafmagn:
Hacker mótor 410$
Hacker hraðastillir 230$
2x Turnigy 5000mah 6sellu, raðtengt í 12s - 134$

Samtals=774$

Bensínútgáfan:

DA-60 með standard muffler - 734$

Tek kanski saman einhvern low budget pakka á eftir, kína bensínmótor vs kína rafmagn til að sjá samanburðinn þar.[/quote]


Þetta er mjög fróðlegur samanburður.