Síða 1 af 2

Re: Smá gáta

Póstað: 1. Feb. 2007 20:54:14
eftir Helgi Helgason
Veit einhver hvar þetta mælaborð er staðsett?

Mynd

Re: Smá gáta

Póstað: 1. Feb. 2007 22:56:24
eftir einarak
í microsoft flight simulator?

Re: Smá gáta

Póstað: 2. Feb. 2007 13:42:21
eftir Helgi Helgason
Þessi mynd er tekin í einhverjum flughermi og er verið að prófa ákveðna vél. Ég hefði átt að spyrja í hvaða flugvél ert þetta mælaborð en á sama hátt hefði sú spurning verið röng vegna þess að þetta er augljóslega úr flughermi. Í ljósi þess að þessar upplýsingar eru komnar fram endurorða ég því spurninguna og spyr nú: Í hvaða flugvél á þetta mælaborð framtíð sína?

Re: Smá gáta

Póstað: 2. Feb. 2007 15:32:38
eftir Björn G Leifsson
Framtíð.... hmmm... þessi hérna flotta rennilega sem ég man ekki nafnið á en er með innbyggða fallhl´ðif í flugklefaþakinu er sú eina sem mér dettur í hug, hún er með svona hæ-tekk mælaborði en hins vegar minnir mig hún sé með gleðipinnum til hliðanna en ekki svona hefðbundnum "stýrum"

Re: Smá gáta

Póstað: 2. Feb. 2007 15:46:03
eftir Gaui K
Ef þú ert að meina cirrus Björn þá er þetta ekki hún allavega.Ég átta mig nú samt ekki á þessu ennþá.

Re: Smá gáta

Póstað: 2. Feb. 2007 15:57:14
eftir Sverrir
Ég held að þú verðir að gefa þeim aðra vísbendingu Helgi ;)

Re: Smá gáta

Póstað: 2. Feb. 2007 21:59:16
eftir benedikt
hmm..þetta er greinilega ekki úr real vél... ef ég ætti að fljúga svona vél þá vildi ég amk sjá svona old-fashion horizon og hugsanlega hæðamæli.

Re: Smá gáta

Póstað: 2. Feb. 2007 22:53:30
eftir Agust
Er þetta ekki flugstjórnarklefinn í Airbus A380 sem var að æfa lendingar suður með sjó um daginn? Björn segir að vélin sé með innbyggða fallhlíf í flugmannsklefaþakinu. Ég hélt reyndar að hann væri mannlaus í A380 eins og nútíma stjórnklefar eru yfirleitt.

Re: Smá gáta

Póstað: 3. Feb. 2007 22:23:21
eftir benedikt
aðeins flóknara :)

Mynd

how to take off ? ;)

Re: Smá gáta

Póstað: 4. Feb. 2007 15:07:00
eftir Helgi Helgason
Ekki er þetta Airbus. og þetta er einsog ég sagði áður greinlega úr fluhermi en þett er mælaborðið sem á að vera í vélinni. Til að gera þetta ekki og of auðvelt kemur hérna næsta vísbending: framleiðandinn er ekki þekktur í flugvéla geiranum.