Fékk svar frá Chris Hansen. Sendingarkostnaður fyrir þetta kit hingað til lands er $25 + $4,95 =29,95. Best að spyrja áður en pöntun er send. Léttari pakka er mun ódýrara að senda.
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 8. Apr. 2015 09:02:31
eftir Agust
Ég keypti líka til prufu fáein tengi sem henta t.d. fyrir tengingu við vængservó. Þau eru latching+polarized.
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 8. Apr. 2015 13:51:50
eftir Sverrir
[quote=Agust]Ég keypti líka til prufu fáein tengi sem henta t.d. fyrir tengingu við vængservó. Þau eru latching+polarized.[/quote]
Fín tengi sem hafa ratað í nokkrar vélar hjá mér, voru og eru enn seld sem Ashlok tengi(eftir félaga Ash í Bretlandi) hjá sumum seljendum.
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 8. Apr. 2015 14:45:26
eftir Agust
60 seconds...
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 8. Apr. 2015 14:51:28
eftir Agust
Ég var að ganga frá pöntun hjá ThunderboltRC þegar ég rak augun í SoldOut merkið við myndina af tönginni hjá þeim.
Þegar maður er kominn upp á lagið með að útbúa eigin tengi þá er ekki aftur snúið
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 20. Apr. 2015 20:33:32
eftir Agust
Þá er þetta komið í hús. Flottar græjur í góðum vönduðum plast kassa. Ég keypti fyrir samtals $130, þ.e. kassa með afeinangrunartöng, krumptöng, sevóvír og tengjum, og auk þess slatta af öðru góðgæti. Burðargjaldið var $30.