Síða 1 af 1

Re: Tónleikar á föstudagskvöldið

Póstað: 5. Mar. 2007 16:13:33
eftir kip
Hvetjum alla flugmódelmenn til að mæta!!

Stórtónleikar með Hvanndalsbræðrum, Þjóðleikhúskjallaranum föstudagskvöldið 9. mars.

- Húsið opnar kl. 22.00, tónleikarnir hefjast kl. 23.00 og það kostar 1.000 kallinn

Eftir áralangan þrýsting frá höfuðborgarbúum láta hvanndalsbræður undan og halda stórtónleika í þjóðleikhúskjallaranum.
Hefð er fyrir því á Akureyri að uppselt sé klukkutíma fyrir tónleika og biðröð langt yfir í Vaðlaheiði þannig að mætið tímanlega.

- Það væri frábært ef þið létuð fólk vita sem er líklegt til að hafa áhuga á því að fara á skemmtilega tónleika á föstudagskvöldið.

- af hvanndal.com:
Hvanndalsbræður leggja land undir fót og verða með tónleikar í Þjóðleikhúskjallaranum föstudagskvöldið 9. mars n.k. Fyrr um daginn verða bræðurnir í Popplandi á Rás 2 og taka nokkur létt lög og spjall. Með í för verða þeir Kristinn Ingi Pétursson (hljómborð) og Pétur Hallgrímsson (mandolín/rafgítar). Á laugardaginn 10. mars fer bandið svo í stúdíó og tekur upp nýtt efni. Svo er allt útlit fyrir tvenna tónleika á Græna Hattinum um páskana þannig að það er allt að gerast.

Næstu gigg:
09.03.07 - Þjóðleikhúskjallarinn
10.03.07 - Einkasamkv.
04.04.07 - Græni Hatturinn
05.04.07 - Græni Hatturinn

Allt um Hvanndalsbræður á http://www.hvanndal.com

Tóndæmi: Kisuklessa http://tonlist.is/PlayPreview.aspx?TrackID=73868

Tóndæmi: Upp í sveit http://tonlist.is/PlayPreview.aspx?TrackID=73867

Mynd

Re: Tónleikar á föstudagskvöldið

Póstað: 5. Mar. 2007 17:35:46
eftir einarak
Syndaselir...
..já auðvitað synda selir

Re: Tónleikar á föstudagskvöldið

Póstað: 8. Mar. 2007 09:46:18
eftir kip
Hverjir ætla að mæta?