Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
maggikri
Póstar: 5954
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir maggikri »

Þann 05.03.2007 kl. 22:10 hófst samsetning (raðsmíði kallast varla smíði) á Aircore Colt 40 SLT vélum. Maggi og Guðni skelltu sér í samsetningu á tveimur slíkum vélum.
Guðni að fá ráðleggingar hjá Sverri sem er staddur fyrir norðan.
Mynd
Lím og svamppenslar sem eru notaðir í verkið
Mynd
Og þá hefst límingin. Þetta er ekki eins nákvæm smíðalýsing eins og hjá Guðjóni og Sverri.
Mynd
Skyldi þessi passa í gripinn. Er hann kannski of stór.
Mynd
Hvað finnst ykkur?
Mynd
Einhver mynd á verkinu
Mynd
Kv
MK
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir einarak »

Sæll, hvaðan keyptu þið þessar vélar og hvað var verðið á þeim hingað komnum? keyptu þið báðar saman?
kv. E
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11631
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir Sverrir »

Þær voru verslaðar hjá TowerHobbies. Þær kosta um 82.500 stykkið hingað komnar ef þú tekur verðið á flugmiðunum með.

Ef þú lætur senda þær hingað(aðeins hægt með UPS) þá kostar stykkið um 15.000.
Þetta er hins vegar eitt af þeim skiptum sem ódýrara er að nota ShopUSA, með þeim kostar vélin um 11.000 hingað komin.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3812
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir Gaui »

[quote=Sverrir]Þær voru verslaðar hjá TowerHobbies. Þær kosta um 82.500 stykkið hingað komnar ef þú tekur verðið á flugmiðunum með.[/quote]
Þetta finnst mér vera nokkuð hátt verð miðað við hvað þetta eru ljótar flugvélar ;)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir einarak »

Og er ekki önnur þessara til sölu...? :D
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11631
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir Sverrir »

Hér á við hið fornkveðna: Hverjum þykir sinn fugl fagur ;)

[quote=einarak]Og er ekki önnur þessara til sölu...? :D[/quote]
Efast stórlega um það, þar sem eigendurnir eru tveir. En það sakar ekki að gera þeim tilboð sem þeir geta ekki hafnað ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Gaui][quote=Sverrir]Þær voru verslaðar hjá TowerHobbies. Þær kosta um 82.500 stykkið hingað komnar ef þú tekur verðið á flugmiðunum með.[/quote]
Þetta finnst mér vera nokkuð hátt verð miðað við hvað þetta eru ljótar flugvélar ;)[/quote]
Æ-já, en hverjum þykir væntanlega sinn fugl fagur.


(tek fram að ég á ekkert í þessu :D )
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir einarak »

[quote=Sverrir]Hér á við hið fornkveðna: Hverjum þykir sinn fugl fagur ;)

[quote=einarak]Og er ekki önnur þessara til sölu...? :D[/quote]
Efast stórlega um það, þar sem eigendurnir eru tveir. En það sakar ekki að gera þeim tilboð sem þeir geta ekki hafnað ;)[/quote]
ég gæti trúað því að það mætti borga einsog 12.1%-18.7% af heildar kostnaði (82.500) fyrir stykkið
Passamynd
maggikri
Póstar: 5954
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir maggikri »

humm
Passamynd
maggikri
Póstar: 5954
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Raðsmíði á Aircore Colt 40 SLT lágþekju

Póstur eftir maggikri »

[quote=Gaui][quote=Sverrir]Þær voru verslaðar hjá TowerHobbies. Þær kosta um 82.500 stykkið hingað komnar ef þú tekur verðið á flugmiðunum með.[/quote]
Þetta finnst mér vera nokkuð hátt verð miðað við hvað þetta eru ljótar flugvélar ;)[/quote]
Gaui minn. Fegurðin er ekki alltaf allt. Það er líka notagildið.
kv
MK
Svara