Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Elson
Póstar: 221
Skráður: 28. Feb. 2010 14:50:11

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir Elson »

Desemberfundur Þyts verður haldinn fimmtudagskvöldið 3. desember í aðstöðu Flugklúbbs Mosfellsbæjar á Tungubakkaflugvelli klukkan 19:00.

Fundurinn verður með með svipuðu sniði og í fyrra, ætlunin er að vera með matarfund þar sem boðið verður upp á eitthvað góðgæti sem hirðkokkur Þyts (Gjaldkerinn) mun töfra fram.

Eins og áður sagði mun Bjarni gjaldkeri sjá um að elda ofaní okkur og er því ætlunin að byrja fundinn klukkutíma fyrr en venjulega, eða klukkan 19:00.

Til þess að hægt sé að framkvæma þetta af einhverju viti er nauðsynlegt að við fáum að vita hverjir ætla að mæta, verðinu fyrir máltíðina verður stillt í hóf eða aðeins 2000 krónur og eru drykkjarföng (malt og appelsín)ásamt kaffi eftir máltíðina með einhverju góðgæti innifalið í verðinu.

Ath Þeir sem það kjósa geta keypt bjór á staðnum.

Þeir sem ætla að mæta þurfa að skrá sig, annaðhvort hérna fyrir neðan eða senda póst á gjaldkeri@thytur.is og þarf skráning að hafa farið fram eigi síðar en sunnudaginn 29. nóvember, einnig er hægt að láta Bjarna gjaldkera vita í síma: 8479891.

Ath! Ekki verður posi á staðnum þannig menn verða koma með reiðufé, eða semja við gjaldkera um aðrar greiðsluaðferðir.

Það er von okkar í stjórninni að menn taki vel í þetta og fjölmenni þannig að úr verði ánægjuleg kvöldstund.

Kveðja stjórnin
Bjarni Valur
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11440
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir Sverrir »

Mæti!
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
arni
Póstar: 276
Skráður: 3. Okt. 2012 18:55:55

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir arni »

Mæti.:)
Passamynd
Böðvar
Póstar: 475
Skráður: 17. Apr. 2004 09:20:53

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir Böðvar »

Mæti !
Passamynd
Flugvelapabbi
Póstar: 589
Skráður: 2. Des. 2008 16:53:06

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir Flugvelapabbi »

Eg mæti.
Agætu felagar vinsamlega meldid ykkur til Bjarna þeir sem ættla ad mæta
svo audveldar verdur ad kaupa inn, þad er ekki ættlast til ad menn mæti sem ekki
lata vita, verid med og njotid anægjulegs kvolds med godum felogum.
Kv
Einar Pall
Passamynd
Gunni Binni
Póstar: 597
Skráður: 7. Apr. 2008 23:26:17

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir Gunni Binni »

Kæru félagar, Þið getið helmingað aðföngin þar sem ég verð erlendis.... :(
kv.
GBG
Passamynd
Eysteinn
Póstar: 519
Skráður: 10. Jan. 2009 16:40:24

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir Eysteinn »

Ég mæti :)
Eysteinn Harry Sigursteinsson.

I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.
Passamynd
Flugvelapabbi
Póstar: 589
Skráður: 2. Des. 2008 16:53:06

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir Flugvelapabbi »

Kæru felagar
ekki draga ad tilkynna ykkur i veislu Bjarna gjaldkera, Bjarni er lista kokkur svo lettid undir og tilkynnid ykkur og komid g njotid i godum felagsskap.
kv
einar pall
lulli
Póstar: 1244
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir lulli »

Það lítur út eins og er, fyrir að ég komist.
( ég mæti)
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Aðventufundur Þyts 3. desember 2015 klukkan 19:00

Póstur eftir einarak »

ég mæti!
Svara