Síða 1 af 2

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 12. Nóv. 2016 23:08:17
eftir Sverrir
Nú er að verða komið ár síðan Flugmódelárið 2015 kom út og ekki seinna vænna en að huga að útgáfu á 2016 eintakinu.

Sem fyrr verður þetta ekki eingöngu útgáfu á prenti heldur einnig rafræn útgáfu sem menn geta þá hlaðið niður og skoðað í tölvum, spjaldtölvum, símum, þvottavélum eða hvað svo sem nýjasta nettengda tækið í ár verður! Þá má einnig nota tímaritið til að kynna áhugamálið fyrir fólki út í bæ með því að dreifa tengli á PDF útgáfuna.

Vonandi hafa menn ennþá áhuga á að eignast útprentað eintak en verðið verður það sama og í fyrra eða 2000 kr stykkið og mönnum er að sjálfsögðu frjálst að kaupa nokkur eintök ef þeir þess óska. Ég ætti svo að fá blöðin úr prentsmiðjunni í byrjun desember.

Áhugasamir geta sent tölvupóst á timarit hja frettavefur.net fram til kl.23:59 þann 20. nóvember til að panta útprentað eintak.

Mynd

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 13. Nóv. 2016 09:32:36
eftir maggikri
Flott vinna hjá þér Sverrir!
kv
MK

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 13. Nóv. 2016 17:15:49
eftir Flugvelapabbi
Glæsilegt framtak
kv
Einar Pall

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 16. Nóv. 2016 15:17:14
eftir Sverrir
Takk, minni menn á að hafa samband fyrir mánudaginn ef þeir hafa áhuga á að eignast útprentað eintak.

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 17. Nóv. 2016 23:27:46
eftir Pétur Hjálmars
Sæll Sverrir " Ari " (prentari), flott framtak.

Ég hef verið of lélegur í félagsmálunum síðustu árin, (lagast von bráðar, held ég).

Ég er áhugasmur um framtak þitt til félagsmála á víðu sviði.
Ég kaupi svona blað, hvað sem það kostar, það er bara til að kvetja þig áfram.

Peningar hafa aldrei verið vandamál á mínu heimili , ég á enga.

Til hamingju með framtakið.

Bestu kveðjur.
Pétur raf.

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 18. Nóv. 2016 22:15:55
eftir Agust
Ég fékk blaðið í dag.

Flottara blað hef ég ekki séð.

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 19. Nóv. 2016 02:13:47
eftir Sverrir
Gaman að heyra, kom úr prentun seinni partinn í dag, 28 ólgandi blaðsíður af efni. :)

Mynd

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 19. Nóv. 2016 18:21:40
eftir Flugvelapabbi
Glæsilegt hja þer Sverrir
Kv
Einar Pall

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 23. Nóv. 2016 21:44:11
eftir Björn G Leifsson
Viltu halda eintaki fyrir mig Sverrir?

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2016

Póstað: 23. Nóv. 2016 21:48:42
eftir Sverrir
Örfá eintök eftir, þar af eitt með þínu nafni herr Doktor! :)