Stop í tolli

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
S.A.S.
Póstar: 13
Skráður: 3. Jan. 2012 21:28:18

Re: Stop í tolli

Póstur eftir S.A.S. »

Sæl öll,

Ég er að koma nýr inn í dróna sportið, er að vinna í því að smíða racer drone, þar að leiðandi þarf ég að pannta fpv gleraugu og fjarstýringu ásamt mörgu flr. Hafa menn verið að lenda í vandræðum með sendingar frá bandaríkjunum þegar það kemur að radio búnaði t.d. eins og fjarstýringar og fpv dóti ?

Kv. Siggi
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11501
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Stop í tolli

Póstur eftir Sverrir »

Ef það er ekki CE merkt þá geturðu nánast gleymt því að fá það, hvaðan svo sem það kemur.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
benedikt
Póstar: 296
Skráður: 28. Feb. 2005 12:22:22

Re: Stop í tolli

Póstur eftir benedikt »

Hef pantað helling af FPV dóti, ekkert stoppað

eina sem er málið er að VTX (video transmitter) eru til í ýmstum styrkleikum
Það er hægt að kaupa 25mW sendi með fullgildu CE skírteini. Allir aðrir sendar, 200mW++ þó svo þeir séu merktir "CE" eða ekki eru í raun ólöglegir. Að því sögðu hef ég pantað helling af þeim - og þeir hafa aldrei stoppað. ;)

- Benni
If you ain't crashing, you ain't trying !
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Stop í tolli

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Tollurinn hefur ekki bolmagn til að elta allar reglur alltaf. En þegar þeir finna upp á því að fylgja reglunum þá getur þú ekkert sagt... nema þú getir veifað skírteini radíóamatörs eins og Benedikt. ;) Þeir hafa meira að segja getað sloppið við CE-merkingarkröfuna á fjarskiptabúnaði, eða svo er mér sagt.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara