Reynsluflug

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Sverrir »

Nóg að gera í góða veðrinu út á velli í kvöld, þeir allra hörðustu fóru heim rétt fyrir miðnætti.
Steini reynsluflaug Seamaster og gekk það ljómandi vel.
Ég prófaði 33% Su-31 frá Hangar 9, fínasta vél sem slær hvaða svifflugu sem er út í svifi eins og ég komst að þegar mótorinn fór í frí, allt fór þó vel og sannaði mosinn við brautarendann sig ;)
Albert, Guðni og Maggi voru líka á svæðinu og flugu eins og herforingjar, tannlæknirinn sást ekki enda ku hann hafa eytt deginum í holugerð á Reykjanesi.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Agust »

Það var alveg frábært veður á Hamarnesi í gærkvöld, en við vorum aðeins þrír; ég, Frímann og Haraldur. Allir með vistvænar rafmagnsvélar.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Sverrir »

Þið hefuð betur komið í fjörið hjá okkur ;)

Annars stefnir í að næstu daga og kvöld verði fínasta flugveður :)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Sverrir »

Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Finnst ykkur það ekki trygg og góð tilfinning að ég er hérna á vakt dag eftir dag, ef þið skylduð þurfa að losna við botnlanga eða gallblöðru svona í miðju flugi... :(
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3855
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Gaui »

Björn -- ertu nokkuð með módel á skurðarborðinu sem þarf þá áð ýta svolítið til hliðar ef einhver kemur inn með botnlanga eða gallaða blöðru? Mér datt í huga að spyrja því Offi er með sitt dót oná öllum kortamyndunum ;)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Neehhh... ekki beint. En það er nú ýmislegt sem fellur til af efni og áhöldum sem nýtast í módelfikti. Meðal annars safnaði ég á tímabili dobíu af rafmótorum (samsvarandi Speed400),,, á til cirka tuttugu kíló af þeim ennþá svo ef einhvern vantar...:D.

Svo eru all konar rör og hólkar sem hafa komið sér vel, franskir rennilásar, tangir og nálahaldarar sem eru úr sér gengnir geta líka nýst á verkstæðinu. Húðaðir vírar í stög og púll-púll og svona mætti lengi telja.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Sverrir »

Tja, ég efast um að það yrði farið með mig til þín en ég skal reyna að biðja um það, ég veit að ákveðinn módelmaður hefur góða reynslu af því að láta þig fjarlægja botnlangan úr sér ;)

Hér er gróf vídeóklippa af fyrsta og öðru fluginu á Sukhoi.
Ég reyni svo að henda klippu af Seamaster inn í kvöld.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui K
Póstar: 449
Skráður: 2. Maí. 2004 23:07:17

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Gaui K »

Sukhoj þarf ekki mjög langa braut !
lifandis skelfingar ósköp eru þið öflugir þarna suðurfrá. maður þarf nú að fara að fara að prófa þenna völl?

kvGaui K.
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Reynsluflug

Póstur eftir Sverrir »

Nei, hún gæti eflaust staðið sig vel í svifflugskeppni.

Svona eftir á að hyggja þá hefði ég alveg getað tekið eins og eina lykkja a la Bob Hoover ;)
Icelandic Volcano Yeti
Svara