Öllu meira fjör gæti þó orðið á stjórnmálasviðinu þar sem þingkosningar munu fara fram. Þar sem engin stjórnmálaflokkur hefur lýst því yfir að hann muni berjast fyrir réttindum módelflugmanna þá verða engar tillögur gefnar hér um það hvernig best sé fyrir módelmenn að ráðstafa atkvæðum sínum.

En á áhugasviði módelmanna þá ber helst að nefna Kríumótið og Frístundahátíð Reykjanesbæjar þar sem Flugmódelfélag Suðurnesja mun vera með kynningu á sportinu í Reykjaneshöll.
Kríumótið verður að venju haldið á Höskuldarvöllum en þó verður það með breytu sniði í ár þar sem það verður hugsað sem kynning fyrir þá sem áhuga hafa á að kynnast þessari áhugaverðu grein módelflugs. Hvort sem menn eru með hefðbundnar svifflugur eða rafmagnssvifflugur þá eru þeir hvattir til að mæta með þær á svæðið. Stangir verðar settar upp fyrir hraðflug, teygja og spil verða einnig á staðnum til að koma vélunum á loft. Lagt verður af stað frá bílastæðinu við álverið í Straumsvík kl.10:00.
Flugmódelfélag Suðurnesja mun verða með kynningu í Reykjaneshöllinni og mun hún standa frá kl.12-17. Jafnvel má búast við því að sjá loftskip á flugi og eitthvað fleira skemmtilegt ásamt því sem hin ýmsu módel félagsmanna verða til sýnis.