Síða 1 af 1

Re: Robbe Robin R2000 / leiðbeiningar

Póstað: 30. Des. 2017 17:15:15
eftir Guðmundur
Góðan dag,

Ég heiti Guðmundur og ætla að byrja aftur í flugmódel smíði og flugi eftir 30+ ár.
Ég og sonurinn höfum mikinn áhuga á að komast af stað í módelsmíðinni. Fyrir um 30 árum þá fékk ég flugmódel Robbe Robin R2000 og hef ég lítið sem ekkert gert í því, en samt hefur mér tekist að tapa leiðbeiningunum sem að fylgdu með í kassanum. Þetta módel var keypt í Tómstundarhúsinu á sínum tíma.
Er einhver sem á leiðbeiningar fyrir þetta módel og getur leyft mér að ljósrita eða skannað inn fyrir mig?


Mynd

Bestu kveðjur
Guðmundur

Re: Robbe Robin R2000 / leiðbeiningar

Póstað: 30. Des. 2017 19:39:13
eftir gudniv
Sæll og velkominn aftur í sportið, hef sjálfur tekið góða pásu frá sportinu , en smíðaði svona módel fyrir þó nokkrum árum og á það enn.... ég skal ath... hvað ég á kv. Guðni Sveins...