Síða 1 af 1
Re: Super Skybolt
Póstað: 4. Jún. 2007 22:12:53
eftir Jón Sen
Reynsluflaug Super Skybolt tvíþekjunni minni í morgun á flugvellinum í Neskaupstað. Vélin hefur verið í smíðum síðan um áramótin, er með OS 120 FS mótor og 15/6 spaða. Flaug eins og hugur manns, þurfti nánast ekkert að trimma eftir flugtak, feykinógur kraftur og svarar vel. Vel hönnuð og gullfalleg vél
eins og sjá má á.
Re: Super Skybolt
Póstað: 4. Jún. 2007 22:14:46
eftir Jón Sen
Re: Super Skybolt
Póstað: 4. Jún. 2007 22:22:29
eftir Björn G Leifsson
Flott vél. Er þetta ekki "spýtur í kassa" smíði?.
Gaman að sjá og heyra frá ykkur þarna hinum megin á hnettinum
Maður ætti kannski að flytja austur....hér er ekki bara vont veður, hér er skítaveður og búið að vera lengi
Re: Super Skybolt
Póstað: 4. Jún. 2007 22:54:46
eftir Sverrir
Til hamingju, stórglæsileg vél
Re: Super Skybolt
Póstað: 5. Jún. 2007 00:53:50
eftir Guðni
Verð að taka undir það ..þetta er svöl vél..alltaf heyrt að Skyboltinn væri
dúndurgóður á flugi, til lukku.
Re: Super Skybolt
Póstað: 5. Jún. 2007 08:17:49
eftir Jón Sen
Þakka fyrir. Þetta er "kit" útgáfan, hún er líka til í ARF útgáfu sem félagi minn hér keypti. Hún var óttalega óhrein í flugi til að byrja með, en eftir að hann breytti hallanum á mótornum lagaðist hún heilmikið. En það jafnast ekkert á við að smíða vélarnar sínar sjálfur, og þessi var virkilega skemmtilegt smíðaverkefni. Og Björn, auðvitað ekki spurning að allt er betra hér fyrir austan, ekki síst veðrið. Og fáir módelmenn sem hafa eigin alvöru flugvöll til afnota!
Re: Super Skybolt
Póstað: 5. Jún. 2007 11:33:37
eftir Gaui
Jón
Til hamingju með þessa tvíþekju. Ég hlakka til að sjá hana í sumar. Okkur Norðanmenn dreymir um að taka túr um austurlandið og svo geri ég auðvitað ráð fyrir að þið Austmenn komið til okkar í ágúst. (Silla verður að vísu ekki heima, svo þú mátt skilja konuna eftir heima
)
Re: Super Skybolt
Póstað: 5. Jún. 2007 11:52:19
eftir Jón Sen
Líst vel á að fá ykkur í heimsókn, enda búið að sameina kjördæmin. Verð heima frá miðjum júlí, komdu og taktu Sillu með svo hún geti heilsað upp á hundana og séð hlaupavélina fyrir hundakapphlaupið sem við verðum þá búin að koma fyrir á túninu hjá okkur. Bara að taka með sem flest módel. Hvenær ætlar þú Björn að skella þér austur?