Hin árlega stríðsfuglaflugkoma EPE var að sjálfsögðu á sínum stað. Fínasta veður fram yfir hádegi, sól, hlýtt og bjart. Smá ókyrrð frá flugskýlunum en ekkert of alvarlegt. Útsendarar Öxulveldanna lágu augljóslega í leyni í nágrenninu og náðu að granda þremur flugmódelum yfir daginn.
Ef vel er gáð má sjá bandamenn í fjarska á leiðinni að tukta á Mig.
Sælir felagar,
stridsfuglarnir flugu sumir foru full hastarlrga nidur en enginn er onytur.
PUPinn er nast vidgerdur en þriþekjan bidur til haustsins.
Þakka ykkur fyrir komuna sem gerir þetta skemmtilegt nu Sverrir fær bestu þakkir fyrir
myndirnar sem geyma daginn betur i minningunni.
Bestu þakkir, sjaumst ad ari
Einar Pall