21 þjóð er skráð til leiks en flestar eru þjóðirnar með fullskipað lið. Samtals eru 63 flugmenn, þar af 3 ungmenni, sem munu hefja keppni þann 8. október og ljúka henni 13. október en mótið verður sett 7. október. Til gamans má geta að allar Norðurlandaþjóðirnar, nema Svíar, eru skráðar til leiks í ár og munu senda fullmönnuð lið til keppni.
Á síðasta heimsmeistaramóti sem haldið var í Danmörku haustið 2016 tókst að fljúga 3-5 umferðir á dag með 59 keppendum og við eigum ekki von á neinu öðru en Þjóðverjar muni halda uppi svipuðum afköstum.
Áhugasömum er bent á að mikil metnaður er í Þjóðverjum og stefna þeir á beinar útsendingar frá keppninni ásamt því að hafa „HM stofu“ í lok dags þar sem farið verður yfir helstu atburði dagsins, viðtöl við keppendur og starfsmenn ásamt fleiru áhugaverðu.
Sem fyrr má hver þjóð senda þrjá flugmenn og einn undir 18 ára að auki. Síðasta haust kom það svo í ljós að áhugasamir þátttakendur hér heima voru heldur fleiri en það og því var það markmið sett á aðalfundi Þyts að hefja æfingar í mars og halda svo keppni í maí og láta úrslit hennar ráða liðaskipan. Það tókst með herkjum að halda keppnina fyrir maílok, eins og menn kannski muna, en það hafðist og þar með lá ljóst fyrir hverjir myndu skipa liðið í ár.
Liðið skipa:
- Erlingur Erlingsson
- Guðjón Halldórsson
- Sverrir Gunnlaugsson
Eins og öllum góðum liðum sæmir þá þurfa þau merki en það hannaði Sverrir með endurgjöf frá liðsfélögum sínum. Um er að ræða grunnútgáfu af merkinu, þar sem stendur F3F TEAM og ICELAND en einnig munu sérstakar útgáfur vera gerðar í kringum mót sem liðið keppir á þar sem nafn staðar og ártal bætist á merkið. Þeir sem vilja styðja liðið geta keypt límmiða með merkinu á 500 kr stykkið, hafið bara samband við Sverri.
Eins og kemur fram hér að ofan er mikill metnaður í Þjóðverjum fyrir framkvæmd mótsins og nú í byrjun ágústs barst póstur frá mótshöldurum þar sem farið var fram á 90 sekúndna kynningarmyndband sem stiklaði á stóru í F3F og sýndi einnig eitthvað frá landinu sjálfu en spila ætti það við setninguna.
Liðsmenn munu halda til Þýskalands þann 4. október nk. og ná vonandi tveim góðum dögum í æfingar áður en þeir taka þátt í FAI World Cup GERMAN OPEN 2018 um helgina en svo hefst keppni á heimsmeistaramótinu mánudagsmorguninn 8. október og lýkur eftir hádegi laugardaginn 13. október. Liðið kemur svo heim sunnudaginn 14. október og verður án efa mikil móttökuathöfn í Leifsstöð og rútuferð niður á Arnarhól!
Sem fyrr munum við reyna að halda vefnum, https://f3f.flugmodel.net, og spjallinu uppfærðu um framvinduna eftir því sem tími gefst til en einnig minnum við á vef mótshaldara, http://wm2018.f3f.de.