Síða 1 af 1

Re: Aðgangur að búðum í USA

Póstað: 24. Okt. 2018 07:32:50
eftir apalsson
Eins og margir sjálfsagt vita er oft erfiðleikum háð að kaupa módel vörur frá Bandaríkjunum því stór hluti verslana einfaldlega sendir ekki út fyrir meginlandsríkin nema í besta falli með einhverjum endemum!

Ég skráði mig í þjónustu sem heitir MyUS.com. Þeir eru vöruhús sem fyrir 7 dollara á mánuði leggja þér til geymslu með þitt eigið heimilisfang og símanúmer og svo þegar þú vilt að þeir sendi vöruna til Íslands senda þeir með ódýrasta miðli í hvert skipti.

Þeir meira að segja umpakka ef það verður til þess að lækka sendingarkostnaðinn og hafa reynst mér afburða hjálplegir og snöggir til.
Eina er að þeir taka ekki við vörum sem teljast vafasamar í flugi eins og til dæmis Lithium barreríum o.s.frv

Ég var að panta með þessum hætti laser-skorið kit af Hostetler 35% RV-4 frá National Balsa en þeir eru dæmigerðir fyrir fyrirtæki sem ekki verslar utan Bandaríkjanna

Re: Aðgangur að búðum í USA

Póstað: 24. Okt. 2018 10:08:06
eftir Sverrir
Getur prófað ShopUSA.is, þeir eru líka með sjóflutning og eiga að geta tekið rafhlöðurnar þá leiðina.

Re: Aðgangur að búðum í USA

Póstað: 24. Okt. 2018 17:07:25
eftir apalsson
Skoðum það!