Síða 1 af 1
Re: Má nota 433.92MHz á Íslandi?
Póstað: 27. Apr. 2019 10:52:48
eftir Eysteinn
Er að spá í búnað fyrir rúllugardínur og er fjarstýring á tíðninni 433.92MHz með honum.
Var einfaldlega að spá í hvort sú tíðni sé í lagi?
Það væri líka ef þið "radíó" menn sem þekkið þetta gætuð bent mér á lista sem sýnir hvað er í lagi og ekki í lagi.
https://www.aliexpress.com/store/produc ... .subject_1
Kær kveðja,
Eysteinn
Re: Má nota 433.92MHz á Íslandi?
Póstað: 27. Apr. 2019 18:37:07
eftir Sverrir
Já hún er það,
sjá lista.
Re: Má nota 433.92MHz á Íslandi?
Póstað: 27. Apr. 2019 23:29:29
eftir Pétur Hjálmars
Sæll Eysteinn.
Þessi tíðni : 433.92MHz er notuð á mörgum bílskúrs-fjarstýringum sem seldar eru nú í dag.
Söluaðilar : Áltak, Héðinn, Vélar og verkfæri Skútuvogi, og fl.
Þarna gætu komið upp vandamal hjá þér.
Re: Má nota 433.92MHz á Íslandi?
Póstað: 28. Apr. 2019 22:52:48
eftir Eysteinn
[quote=Pétur Hjálmars]Sæll Eysteinn.
Þessi tíðni : 433.92MHz er notuð á mörgum bílskúrs-fjarstýringum sem seldar eru nú í dag.
Söluaðilar : Áltak, Héðinn, Vélar og verkfæri Skútuvogi, og fl.
Þarna gætu komið upp vandamal hjá þér.[/quote]
Þannig ef nágraninn kemur heim og opnar skúrinn hjá sér dregur hann mögulega upp gluggatjöldin hjá mér
Re: Má nota 433.92MHz á Íslandi?
Póstað: 7. Maí. 2019 16:56:21
eftir Pétur Hjálmars
Rétt. eða þú kemst í bílskúrinn hans.
Re: Má nota 433.92MHz á Íslandi?
Póstað: 19. Maí. 2019 23:21:42
eftir Agust
Radíóamatörar tota tíðnisviðið 430 til 440 MHz og mega nota þar allt að 500 wöttum.
Sjá reglugerð sem hægt er að nálgast hér sem pdf skjal:
https://www.stjornartidindi.is/Advert.a ... 5ebb303d72
Hvort einhver radíóamatör sé að senda á 433.92 MHz er annað mál, en það er möguleiki.
Sjá einnig hér:
https://www.pfs.is/fjarskipti/tidnir-og ... oamatorar/