Spáin fyrir helgina var ekki góð svo það var ákveðið að færa mótahaldið yfir á seinni partinn í dag í staðinn þar sem veðurspáin var örlítið skárri og beint upp á Bleikisteinshálsinn um miðjan daginn. Sjö keppendur voru tilbúnir á hliðarlínunni en þegar til kom þá mættu fimm í brekkuna.
En rásröðin var sem hér segir:
- Böðvar
- Erlingur
- Rafn
- Guðjón
- Sverrir
Úrslit urðu sem hér segir, áhugasamir geta skoðað nánari greiningu á vef F3XVault:

Aðstæður voru fjölbreyttar í dag og bólur höfðu sitt að segja annað slagið um flughraðann sem í boði var, heilt yfir voru menn þó að fljúga við svipaðar aðstæður eins og sést á stigadreifingunni en fjórða sætið var með rúmlega 86% af stigum fyrsta sætis. Þrír flugmenn skiptu svo með sér fyrsta sætinu í þessum fjórum umferðum
Með því að nota keppnistölvuna og vindmæli fæst nákvæm greining á öllum flugunum. Hvet menn til að skoða þetta, fara t.d. inn á hverja umferð fyrir sig (smella á Round X í hausnum) og skoða svo auka flipana sem eru með alls konar góðgæti, einnig smella á nafn flugmannanna.

Böðvar átti hraðasta flugið 68,48 sek í annari umferð, Sverrir vann tvær umferðir og Böðvar og Erlingur eina umferð hvor. Árni og Frímann stóðu svo vaktina í hliðunum með stakri prýði og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir! Þetta hefði ekki gengið svona hratt og vel fyrir sig án þeirrar hjálpar!
Uppsetning á brautinni.



Keppendur fóru að streyma að um þrjúleytið.

Svo hófst fjörið.








Böðvar klár í fimmtu umferðina sem ekki var flogin.

Sögustund með Böðvari.

Vindurinn fór að verða frekar krossaður upp úr hálf fimm.

Böðvar fékk verðlaun fyrir hraðasta flugið.

Frímann og Árni fá sérstakar þakkir fyrir hliðvörsluna.

Hópmyndin var á sínum stað.

Mynd: Árni