[quote]Kristján Ó. Guðnason, yfirmaður umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir ekkert í umferðarlögunum sem banni akstur mótorhjóla á einu hjóli. „Það hinsvegar getur varðað refsingu að sýna af sér gáleysi eða aðgæsluleysi í umferðinni. Þetta getur sannarlega fallið þar undir og mundi að öllum líkindum gera það. Það yrði að skoða og eftir atvikum yrði það dómari sem tæki þá afstöðu til þess,“ segir Kristján í samtali við DV.is. Kristján segir að ef lögregla yrði vitni af svona aksturslagi myndi hún stöðva það.
„Það eitt að aka á einu dekki, að prjóna svona eins og hann gerir, það er ekkert ákvæði sem bannar það í sjálfu sér. Hinsvegar framkvæmdin, að aka eins og þessi maður gerir í umferð og á talsverðum hraða, myndi kalla á viðbrögð lögreglu. Væntanlega yrði það eftir atvikum dómari sem tæki afstöðu til þess hvort að þetta varði við fjórðu grein umferðalaganna sem fjallar um tillitssemi og aðgæslu í umferð,“ segir Kristján.[/quote]
Þá veit maður það, best að halda sig bara við fjórhjólin.
Re: Ný þýsk tækni eykur öryggi mótorhjólamanna
Póstað: 30. Sep. 2010 15:06:24
eftir Haraldur
Fjórhjól (mótorhjól) eru líklega bönnuð líka í umferðinni:
Re: Ný þýsk tækni eykur öryggi mótorhjólamanna
Póstað: 30. Sep. 2010 16:26:43
eftir Sverrir
Það eru til götuskráð fjórhjól sem eru leyfð í umferðinni, sjást annað slagið á ferðinni.
Annars var ég að vísa í bílinn minn með fjórhjóla setningunni hér að ofan.
Re: Ný þýsk tækni eykur öryggi mótorhjólamanna
Póstað: 30. Sep. 2010 17:00:15
eftir ErlingJ
flest allir mótorhjóla menn sem ég þekki og hafa verið að lifta framdekki eða afturdekki í viðurvist yfirvaldsins hafa verið stöðvaðir og sektaðir (glæfra akstur) eins og það er túlkað hjá lögguni.
en eins og segir þarna í fréttinni þá er margt annað þarna sem er gert annað en "prjónið" sem er ólöglegt.
já það þurfti að leyfa götuskráð fjórhjól á Íslandi en var ekki gert fyrr en eftir 4-5 ár eftir að það var leyfilegt á norðurlöndum og evrópu (ESB).
það er stutt síðan að suðurnesja maðurinn Skúli steinn myndaði sjálfan sig á reykjanesinu á 2-300 kmh og setti inn á youtube og það fór til ransóknar lögregglu en var ekki kært að mig mynnir því það sást ekki í andlit hanns .
myndbandð sem ég setti inn er af Dönskum fréttamanni að prufa hjól eins og mitt og sama típa af hjóli sem er eiðilagt í videoinnu sem sverrir setti inn .
Danska videoið var gert fyrir motorhjóla magasine og var það tekið upp á autoban í þískalandi og telst því ekki ólöglegt......þó svo að einhver sé búinn að skíra þetta ólöglegt þarna á youtube
kveðja
Erling
Re: Ný þýsk tækni eykur öryggi mótorhjólamanna
Póstað: 30. Sep. 2010 18:20:42
eftir Ingþór
ég held að hámarks sekt við "glæfra akstri" sé 5000 krónur, mætti frekar bara kalla það gjald.
[quote=Erling]það er stutt síðan að suðurnesja maðurinn Skúli steinn myndaði sjálfan sig á reykjanesinu á 2-300 kmh og setti inn á youtube og það fór til ransóknar lögregglu en var ekki kært að mig mynnir því það sást ekki í andlit hanns[/quote]
aldrei verið sannað að hann hafi myndað sjálfan sig, eingögnu hann sem hlóð myndbandinu inn...
þeir fullnýttu lagaheimildir til að gera honum lífið leitt en ákærðu aldrei og vissu það í upphafi ransóknar að það myndu þeir aldrei geta það.
margt mikið glæfralegra gert í þjóðfélaginu en að aka á afturdekki eða fara upp fyrir hámarkshraða sem aldrei er ransakað né ákært og menn geta haft sínar skoðanir á þeirri forgangsröðun, ég hef mína