Síða 1 af 1

Re: Þegar þyrla ræðst á flugmann

Póstað: 17. Okt. 2014 20:30:40
eftir Sverrir
Þessi óheppni einstaklingur fékk þyrluna sína framan í sig en er að jafna sig eftir atvikið. Þyrlan var Goblin 630 en spaðaþvermálið á henni er rétt tæplega 143cm. Munið að fara varlega á flugvellinum, við megum engan mann missa!

Mynd

Ekki flugmaðurinn en sýnir stærðina á þyrlunni.
Mynd



Vinsamlegast ekki smella á tengilinn ef þið eruð viðkvæm fyrir opnum sárum, blóði og öðru sem öllu jöfnu er hulið sýn!

http://imgur.com/a/Ej5ge

Re: Þegar þyrla ræðst á flugmann

Póstað: 18. Okt. 2014 10:10:44
eftir Jónas J
Damn... þetta er ekki flott að sjá.

Það er víst betra að passa sig á þessu dóti :)

Re: Þegar þyrla ræðst á flugmann

Póstað: 18. Okt. 2014 10:17:11
eftir Agust
Mér hefur alltaf verið meinilla við þessar þyrlur sem sveifla sveðjunum nægilega hratt til að afhöfða fullorðinn mann. Þessi var heppinn að missa ekki höfuðið.

Re: Þegar þyrla ræðst á flugmann

Póstað: 18. Okt. 2014 17:45:06
eftir Haraldur
Spaðar á stórum flugmódelum eru heldur engar smá sveðjur og allveg jafn hættulegar.