Smíðað á Grísará

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Patróni
Póstar: 327
Skráður: 21. Jan. 2009 23:32:18

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Patróni »

[quote=Árni H]20% smíðar - 80% glens :D[/quote]
Eins og það á nú stundum að vera.
Gísli Einar Sverrisson.MSV Patreksfirði
Hef ekki enn séð endirinn á þessari flugdellu.
Passamynd
Gaui
Póstar: 3724
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Það er eins og að bakka í barmafullan lækinn að sýna fleiri myndir af Árna að mála depla, enda er hann hættur að nenna því og grípur frekar í módeltímarit en pensilinn:

Mynd

Mummi er hins vegar frekar duglegur og farinn að sprauta Borðdúkinn:

Mynd

Við auglýstum eftir nýjum eftirlitshundi í skúrinn eftir að Surtur dó og vænlegur arftaki mætti í dag. Hún heitir Freyja Kríudóttir og er barna-barna-barn Surts. Hún var prófuð í djobbið ...

Mynd

... og stóðst öll próf.

Mynd

Hún fékk líka að skoða tækjabúnaðinn, ekki bara verklagið og leist bara vel á.

Mynd

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1589
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Árni H »

Nokkrar nýjar teikningar bárust til okkar frá heitu löndunum um daginn og nú sitja Grísæringar sveittir við að spekúlera. Hver veit hvað mun líta dagsins ljós næsta (eða þarnæsta) sumar?

Mynd

Meira að segja Helmut mætti með mælistiku, en hann hefur varla verið með sjálfum sér eftir að ég seldi Zlininn hans :)
Mynd
Passamynd
Gaui
Póstar: 3724
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Árni var að P-38-era hjólastellið á Fokkernum og bjó til listaverk í leiðinni (enda með eindæmum listrænn aður í sér). Þetta er hálf þvottaklemma í slummu af P-38. Verkið er táknrænt fyrir fjármál á Íslandi eftir hrun.

Ég ákvað að taka af því mynd:

Mynd

Slæm gæði myndarinnar eru vegna þess að ég var að nota gamlan og drullugan Nókía síma til verksins en ekki alvöru myndavél.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1589
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Árni H »

Fleiri farsímamyndir! Mummi átti í erfiðleikum með að komast með puttana alla leið inn í Birddog þannig að vaselínið var sótt. Aðfarirnar minntu á sæðingamenn í fjósi nema Birddoginn skaut ekki upp kryppu og baulaði. Hundarnir fylgdust lotningarfullir með aðförunum. Þvottaklemma festist í P38 vegna nettrar ofnotkunar á Herði og nýyrðið "skrængur" varð til en annars var þetta bara stórslysalaus sunnudagsmorgunn "as usual" að Grísará.

Mynd
Passamynd
Gauinn
Póstar: 603
Skráður: 29. Maí. 2012 23:24:07

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gauinn »

Alltaf sama stuðið á ykkur.
Gaman að þessu
Langar að vita miklu meira!
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir jons »

Árni var eins og áður hefur komið fram uppfullur af fjöri í dag - ekki nóg með að hann notaði bleikasta fylliefni sem ég hef séð heldur límdi hann líka nokkrar spýtur. Þetta gerist ekki oft - enda má sjá afraksturinn á myndunum hér fyrir neðan.

Á fyrstu myndinni er Árni í miðri límingarvinnu. Hann var svo ákafur við límingarnar að aumingja Freyja hafði miklar áhyggjur af honum og ákvað að aðstoða á allan þann hátt sem hún gæti. Lætin voru slík í þeim tveimur að ég náði ekki einu sinni óblörraðri mynd.

Mynd

Þegar Gaui nefndi sakleysislega að þetta fylliefni væri nú með því bleikasta á ferlinum og gæfi ekki mikinn tíma til umhugsunar stóð Árni eldsnöggt upp og gaf Gauja einn á hann með þvottaklemmunni áður en hann stakk henni í restarnar af fylliefninu. Þetta var afar hnitmiðuð og þokkafull árás, en gerðist því miður svo snöggt að það var ómögulegt að ná af henni mynd. Gaui samþykkti náðarsamlegast að ég mætti taka mynd af afleiðingunum áður en hann færi að nudda andlitið með rauðspritti. Verst hvað bleiki liturinn sést ekki.

Mynd

Til gamans læt ég svo fylgja með mynd af Gauja að taka mynd af þvottaklemmunni. Það er engu logið um þennan síma sem var notaður til verksins. Eins og alþjóð veit er Gaui að fara að leika Emil í Kattholti (eða Ídu?) í Freyvangi. Mig grunar að Gaui hafi fengið þennan síma lánaðan úr leikhúsinu; þetta er líklegast síminn sem Emil átti í gamla daga :P

Mynd

Fyrir utan þetta er svo sem ekkert markvert að gerast í skúrnum þessa dagana...

...eða hvað? Hér kemur að lokum einn örlítill teaser fyrir æsta lesendur...



Mummi
Jón Stefánsson
Passamynd
Gaui
Póstar: 3724
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Alltaf líf og fjör á Grísará. Nú eru Mummi og Árni í sviðsljósinu. Mummi er að prófa nýtt frá meistaranum!



:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Böðvar
Póstar: 482
Skráður: 17. Apr. 2004 09:20:53

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Böðvar »

Bara flottir og heimilislegir og umfram allt yndislegir módelsmiðir á Grísará.
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir jons »

Lífið í skúrnum er loksins að komast í fastar skorður og lífið gengur sinn vanagang.

Mynd

Aðstoðarhundurinn okkar nýi er svo sem enn að læra á starfið, en tekur því mjög alvarlega. Hérna hefur hún töluverðar áhyggjur af því hvernig Gaui pússar krossvið.

Mynd

Í dag var nú Gaui reyndar fyrst og fremst að þrífa bekkinn og var nú ekki lítið stoltur af afrekinu. Það var meira að segja hægt að geyma mat á borðinu! Freyja eftirlitshundur var enn á vaktinni og hjálpaði að sjálfsögðu til við kexátið.

Mynd

Á meðan ég dáðist að tiltektinni og öfgahreinlætinu í vesturenda skúrsins læddist Árni að borðdúknum og læddi þeim Adolf og Evu um borð. Ég tók eftir því þegar heim var komið að það sést alla leið til Keflavíkur hjá Evu ræflinum og biðst afsökunar á þessari siðspillingu. En .. hvað er með þetta Eva Braun blæti hans Árna?

Mynd

En svo gerðist dulítið merkilegt. Þegar Árni var að pússa stöngina sína tók ég eftir skýringunni á því af hverju það hefur tekið hann nokkur ár að mála örfáa depla. Ég náði þessu meira að segja á mynd:

Mynd

Þegar vel er í rýnt má sjá mann með strokleðrið á lofti. Mig grunar að þar sé á ferðinni Bubbah Jr sjálfur, hliðarsjálf Árna, en eins og flestir vita sem til þekkja þá er oft ansi stutt í redneckinn á þeim bænum.

Mummi.
Jón Stefánsson
Svara