Smíðað á Grísará

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3773
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Árni þurfti að kíkja inn í Heinkel. Hann hefur gert þetta áður, þegar hann setti höfuðið ofan í Grunau Baby og festist!

Mynd

Hugsanlega ekki mikil hætta á að hann festist hér.

Mummi setti flapsaservóin ofan í vængina á Borðdúknum:

Mynd

Ég sullaði Red Devil á Heinkel skrokkinn. Ef maður jóðlar spartlinu á með lúkunni (í gúmmíhanska), þá dreyfist það svakalega vel.

Mynd

Og hér er smá skot af þeim Freyju og Mumma, en þau eru góðir vinir og Freyja heilsar honum vel þegar hann kemur og kveður hann lengi þegar hann fer.

Mynd

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3773
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Við prófum hvað sem er, alla vega einu sinni, og þegar Árni nefndi að Heinkel skrokkurinn væri eins og vindill í laginu, þá var bara um að gera að prófa að kveikja í honum:

Mynd


:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Þið haldið í mér lífinu með þessum ítarlegu vinnuskýrslum. Hlakka til næst þegar ég á leið framhjá og fæ smá balsaryksbætt kaffi :D
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir jons »

Þegar hugmyndin um vindilinn kom upp rauk Gaui í skápinn og tautaði með sjálfum sér að hann ætti nú gulan kveikjara þarna einhvers staðar, hann þyrfti bara að finna hann.

Lengi vel stóð Árni fyrir aftan og benti Gauja á að hann sæi í hann þarna aftast, nei aðeins til vinstri, nei, þarna aðeins á bak við osfrv osfrv.

Mynd

Það lá við að norðurhliðin væri orðin fokheld þegar Gaui lauk sér loks af við uppgröftinn og snéri sér við, bara til að sjá okkur Árna rauða í framan og með tár á kinnum af rembingi að halda niðri í okkur hlátrinum.

Mynd
Jón Stefánsson
Passamynd
Árni H
Póstar: 1593
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Árni H »

Fyrir norðan gengur lífið sinn vanagang á nýju ári - Gaui rennir hýru auga til vaselíndollunnar og flugvélasmíð mjakast áfram um leið og bretagræn slikja leggst yfir menn og málefni...
Mynd
Mynd Mynd
Passamynd
Árni H
Póstar: 1593
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Árni H »

Hérna er panorama frá því í morgun. Flugvélar frá þremur stórstyrjöldum eru óðum að taka á sig lokamynd en eitthvað er Mumminn hugsi á kantinum en Gauinn er hinn hressasti með Hurricaneinn.

Mynd

Svo er ein stutt hreyfimynd úr símanum - beðist er velvirðingar á að hljóð og mynd fer ekki alveg saman.
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Haraldur »

Þið smíðið og smíðið, en kemur ekkert út úr fabríkunni?
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir jons »

Jújú, til dæmis endalaus gleði. Hvað er hægt að biðja um meira? :)
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir jons »

Ég tálgaði og límdi saman flugmann í Birddogginn. Balsi, froðuplast og gamalt handklæði plús eitthvað smálegt. Eins og sést nennti ég ekki að tálga hendur né heldur að setja á hann falleg augu :)

Mynd

Mynd

Ég hef kosið að kalla hann Lieutenant Dan.
Jón Stefánsson
Passamynd
Gaui
Póstar: 3773
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Góð ráð á Grísará:





:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara