Raunveruleikinn... eða ekki????????
Re: Raunveruleikinn... eða ekki????????
Hér er flugvöllurinn hans Ágústar > http://frettavefur.net/video/Flugvollur-AHB.exe
Icelandic Volcano Yeti
Re: Raunveruleikinn... eða ekki????????
Smávegis um flugvöllinn og myndina:
Ég sléttaði þýfið í maí í fyrra og sáði síðan og bar á. Grasrótin var orðin sæmilega þétt þegar ég tók myndina um mitt síðasta sumar með Canon 300D. Völlurinn mætti þó vera aðeins sléttari. Það má sjá móta fyrir tveim brautum þar sem grasið er betur slegið.
Þessi panoramamynd er gerð úr 12 af 36 myndum sem ég tók með það í huga að búa til kúlu-panorama fyrir AFPD. Á myndina vantar efsta hluta himinsins og grasið næst fótum flugmannsins/ljósmyndarans, eða 24 myndir. Þetta er því cylinder-panorama frekar en spherical-panorama eins og ætlunin er að gera.
Myndina er best að skoða með því að stækka hana í fulla skjástærð. Myndin er jafnvel með enn meiri upplausn, þannig að það er hægt að nota zoom (+) (stækkunarglerið neðst til vinstri) til að komast nær. Þessi mynd er búin til með PixMaker http://www.pixaround.com
Ég þarf að fara að klára myndina fyrir AFPD þannig að ég geti farið að njóta sumarsins í sýndarheimi, eða launveruleikanum
Ágúst
PS. Hér er önnur slóð að panorama forriti: http://www.ptgui.com/./

Flott mynd.
Ágúst ertu ekki til í að taka svona mynd af Hamranesflugvelli, og svo myndum við setja hana inn í AFPD ?

Þetta er venjulegi AFP
Re: Raunveruleikinn... eða ekki????????
Nú er ég langt kominn með að setja litla flugvöllinn í sýndarheim APD. Ég byrjaði á að búa til panoramamynd 8192x4096 pixel úr 36 myndum. Ég varð að nota Photoshop til að lagfæra nokkra hnökra, en þetta tókst bara nokkuð vel í fyrstu tilraun.
Það er ótrúlega raunverulegt að sitja við tölvuna og fljúga á þarna flugvellinum sem maður gjörþekkir. Reyndar undarleg tilfinning að hafa hamast og svitnað þarna fyrir hálfu öðru ári við að gera völlinn í raunheimi, og síðan aftur í sýndarheimi.
CAP-232 á myndunum er 33%, en einnig má sjá þar gamla Kyosho Cap232/OS70. Ég flaug áðan rafmagnssvifflugu, og fann varla nokkurn mun á raunveruleikanum og launveruleikanum
Ég á eftir að laga sólina, en hún skín í sýndarheimi úr norðri (hægri), en úr suð-vestri (vinstri) í raunveruleikanum. Það er ekki mjög flókið. Einnig á ég eftir að útbúa árekstrarskynjun, ef þörf er á. Það er svo sem ekki mikið sem hægt er að rekast á.
Ég var sem sagt að ljúka þessu rétt áðan, en á eftir smá nostur. Vel getur verið að ég reyni að taka enn betri myndir næsta sumar.
Zoomað inn. Völlurinn er ekki alveg svona nálægt gufunni.
Hér er sjónarhornið réttara en í fyrstu myndinni.

Það má kanski bæta því við að 33% vélin er bara skynvilla. Litla vélin er þó raunveruleg.
Þetta vekur upp margar spurningar. Getur verið að heimurinn, sem við teljum raunverulegan, sé bara skynvilla. Erum við bara hugarfóstur í einhverjum sýndarveruleikaheim? Hvað segið þið tölvunarkerfisfræðingar? Ha?
Þetta vekur upp margar spurningar. Getur verið að heimurinn, sem við teljum raunverulegan, sé bara skynvilla. Erum við bara hugarfóstur í einhverjum sýndarveruleikaheim? Hvað segið þið tölvunarkerfisfræðingar? Ha?
Re: Raunveruleikinn... eða ekki????????
Hafa menn verið að horfa á Matrix í sveitinni
Annars eru svona spurningar best íhugaðar með kalda krús í hönd.