Þó menn séu í hangi og svifi þá er ekki þar með sagt að þeir þurfi að einskorða sig við svifflugvélar! Um síðustu helgi var haldin árleg PSSA flugkoma í Great Orme í Wales þar sem menn skemmtu sér með módel af fullskala vélum, allt frá Spitfire og upp í B52. Hægt er að sjá fleiri myndir á Flickr.