Leikföng, eða Íþrótta og tómstundavörur?

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Leikföng, eða Íþrótta og tómstundavörur?

Póstur eftir Agust »

Humm...

Þannig að ef ég lækka sendingakostnaðinn innanlands í USA úr $70 í $10 (heildarverð $410) þá kostar ShopUSA samtals 57.468. Þetta er með leikfanga-tollflokki.


Ef ég nota Íþrótta & tómstundavöru-tollflokkinn (og ef ég kæmist upp með það), þá væri heildarkostnaðurinn skv. reiknivél ShopUSA 52.908
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Leikföng, eða Íþrótta og tómstundavörur?

Póstur eftir Spitfire »

Hérna eru nokkur "leikföng" ef menn vilja skilgreina þau þannig :cool:
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Leikföng, eða Íþrótta og tómstundavörur?

Póstur eftir Agust »

Ekki furða þó að menn undrist að þetta skuli vera tollflokkað með Legókubbum og dúkkulísum.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Leikföng, eða Íþrótta og tómstundavörur?

Póstur eftir Sverrir »

Tucano var settur á tollskrárnúmer 9801.1004, ég fann ekkert um það á tollur.is svo ég fór og leitaði hjá Gogga frænda og rakst þá á 709/2000 Reglugerð
um tollmeðferð póstsendinga(http://tinyurl.com/yfrhoc/).

Þar stendur: "Vörur í smásendingum má flokka saman í tollskrárnúmerin 9801.1001 til 9801.1033 þegar um innflutning er að ræða...".

Neðar á síðunni sést svo hvað er undir 9801.1004
Sængurlín, borðlín o.þ.h.; hárþvottalögur, ilmvötn, snyrtivörur, skrautvörur, skartgripir; búsáhöld, ekki rafknúin; húsgögn; ljósmyndir; hljómplötur, segulbönd, tölvuleikir o.þ.h; töskur og veski
Icelandic Volcano Yeti
Svara