Veðurspáin fyrir seinni partinn í dag var farinn að líta þokkalega vel út í gærkvöldi, hásunnan 6 m/s og svo myndi draga niður með kvöldinu. Það var því stefnt á suðurhlíðar Hamranesfjalls eða Bleikisteinsháls eftir vinnu í dag til að frumfljúga Respect F3F. Á leiðinni þangað hringdi Erlingur en hann hafði átt leið suður í fjörð og ákveðið að taka rúntinn fram hjá Hamranesinu í leiðinni, ekki verra að fá aðstoðarmann í fyrsta kastið!
Það var tiltölulega rólegur vindur, 5-6 m/s en beint á brekkuna. Respect stóð sig mjög vel og er óhætt að segja að hún lofi góðu fyrir frekari flug! Ég vígði líka fínu Mobíus derhúfuna mína eins og sjá má á vídeóinu sem fylgir. Má kannski segja að þetta hafi verið tvöfalt frumflug!?