Bleikisteinsháls - 23.ágúst 2019 - Hangmótið mikla

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Post Reply
User avatar
Sverrir
Site Admin
Posts: 11484
Joined: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Bleikisteinsháls - 23.ágúst 2019 - Íslandsmótið í hangi F3F 2019

Post by Sverrir »



Spáin fyrir helgina var ekki góð svo það var ákveðið að færa mótahaldið yfir á seinni partinn í dag í staðinn þar sem veðurspáin var örlítið skárri og beint upp á Bleikisteinshálsinn um miðjan daginn. Sjö keppendur voru tilbúnir á hliðarlínunni en þegar til kom þá mættu fimm í brekkuna.

En rásröðin var sem hér segir:
  1. Böðvar
  2. Erlingur
  3. Rafn
  4. Guðjón
  5. Sverrir
Mótið gekk almennt nokkuð vel fyrir sig, þrjú endurflug vegna bjöllugangs og eitt þegar vindur fór niður fyrir leyfileg lágmörk. Rafn hætti eftir óhapp í fyrstu umferð og Böðvar þurfti að sitja hjá í fjórðu umferð eftir smá lendingaróhapp þegar hann þurfti að koma frekar snöggt inn til lendingar þar sem vindur var á hraðri niðurleið. Hann var svo klár aftur fyrir fimmtu umferðina sem aldrei var flogin.

Úrslit urðu sem hér segir, áhugasamir geta skoðað nánari greiningu á vef F3XVault:
Image

Aðstæður voru fjölbreyttar í dag og bólur höfðu sitt að segja annað slagið um flughraðann sem í boði var, heilt yfir voru menn þó að fljúga við svipaðar aðstæður eins og sést á stigadreifingunni en fjórða sætið var með rúmlega 86% af stigum fyrsta sætis. Þrír flugmenn skiptu svo með sér fyrsta sætinu í þessum fjórum umferðum

Með því að nota keppnistölvuna og vindmæli fæst nákvæm greining á öllum flugunum. Hvet menn til að skoða þetta, fara t.d. inn á hverja umferð fyrir sig (smella á Round X í hausnum) og skoða svo auka flipana sem eru með alls konar góðgæti, einnig smella á nafn flugmannanna.
Image

Böðvar átti hraðasta flugið 68,48 sek í annari umferð, Sverrir vann tvær umferðir og Böðvar og Erlingur eina umferð hvor. Árni og Frímann stóðu svo vaktina í hliðunum með stakri prýði og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir! Þetta hefði ekki gengið svona hratt og vel fyrir sig án þeirrar hjálpar!


Uppsetning á brautinni.
Image

Image

Image

Keppendur fóru að streyma að um þrjúleytið.
Image

Svo hófst fjörið.
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Böðvar klár í fimmtu umferðina sem ekki var flogin.
Image

Sögustund með Böðvari.
Image

Vindurinn fór að verða frekar krossaður upp úr hálf fimm.
Image

Böðvar fékk verðlaun fyrir hraðasta flugið.
Image

Frímann og Árni fá sérstakar þakkir fyrir hliðvörsluna.
Image

Hópmyndin var á sínum stað.
Image
Mynd: Árni
Icelandic Volcano Yeti
User avatar
gudjonh
Posts: 855
Joined: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: Bleikisteinsháls - 23.ágúst 2019 - Hangmótið mikla

Post by gudjonh »

Og nokkrar myndir
Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image

Guðjón
User avatar
arni
Posts: 276
Joined: 3. Oct. 2012 18:55:55

Re: Bleikisteinsháls - 23.ágúst 2019 - Hangmótið mikla

Post by arni »

Takk fyrir góðar myndir og góðan félagsskap
Kveðja.Árni F.
User avatar
RT
Posts: 10
Joined: 14. Feb. 2014 14:57:06

Re: Bleikisteinsháls - 23.ágúst 2019 - Hangmótið mikla

Post by RT »

Það stendur að ég hafi hætt eftir óhapp í fyrstu umferð!!
Það er ekki rétt.
Í þremur F3F mótum Sverris nú síðast á Hamranesbrekkunni er að í hverju móti eru eru ekki samræmdar reglur.
Hentistefna ríkir.
Því miður
RT
Post Reply