Barnstormerinn flaug eins og engill. Hægt og virðulega á meðan hreyfillinn gekk, en sveif eins og sviffluga þegar dó á honum. Ætlaði bara alls ekki að lenda.
20230722_101948.jpg (142.38 KiB) Skoðað 3074 sinnum
20230722_115016.jpg (142.46 KiB) Skoðað 3074 sinnum
362875982_821788139395001_5821761563651944463_n.jpg (120.11 KiB) Skoðað 3074 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Þegar tvö flugmódel eru á sama stað á sama tíma, þá verður eitthvað að gefa eftir. SKY 120 skaddaðist á vinstri væng við að rífa stélið af flugvélinni hans Elvars. Sú tók lóðbeint strik í jörðina og stakkst svo harkalega niður að það tók Elvar góðan hálftíma að grafa mótorinn upp. Ég náði stjórn á SKY 120 og tókst að lenda eftir margar tilraaunir til að krassa.
Vinstri vængurinn ofanfrá. Þetta er ekki svo svakalegt, hugsaði ég.
20230820_114110.jpg (133.49 KiB) Skoðað 3024 sinnum
Ég byrjaði að gera við vænginn í dag og þá kom í ljós að tjónið var aðeins meira en ég hélt:
20230826_111527.jpg (141.04 KiB) Skoðað 3024 sinnum
Búinn að heinsa frá að neðan og líma það seem var lausst, en féll í gamlar skorður.
20230826_115720.jpg (147.06 KiB) Skoðað 3024 sinnum
Meira seinna
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
20230905_102900.jpg (115.01 KiB) Skoðað 2902 sinnum
Nú er komið upp annað vandamál: annar af boltunum sem halda hljóðkútnum er laus. Ég lenti í þessu áður og þá setti ég málm-epoxý í götin og snittaði fyrir M5 boltum í saðinn fyrir M4. Nú er annar þeirra laus aftur. Í staðinn fyrir að fikta eitthvað við Zenoah 38 mótorinn, þá ætla ég að setja DLE35 í staðinn.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Það er einn galli við að skipta úr Zenoah í DLE: það er um 1200 gramma munur á þyngd á þessum mótorum. Zenoah er um 2300 grömm, en DLE er bara 1100 grömm.
Til að jafnvægisstilla módelið byrjaði ég á að grafa allt blý úr afturendanum á SKY.
20230912_111742.jpg (135.2 KiB) Skoðað 2838 sinnum
Mér fannst þetta vera alveg hellingur þegar ég tróð þessu þarna í, en þetta reyndust bara vera 125 grömm. Nú er blýið farið, en ég þarf líklega að troða um kílói af blýi fyrir aftan mótorinn.
20230912_113653.jpg (119.28 KiB) Skoðað 2838 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.