Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3865
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 102

Mér tókst að flensa vinstri vísifingur, um 30 mm skurður oní bein þegar ég var að skera álklæðninguna framan við hurðina sem ég festi á. Þessi hurð fer ekki af aftur.
20250520_105411.jpg
20250520_105411.jpg (137.93 KiB) Skoðað 127 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3865
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 103

Ég setti ramma á framrúðuna með því að setja límband fyrir ofan og neðan og svo smyrja P.38 á milli. Ef maður pússar þetta fljótlega eftir að það harðnar, þá er auðvelt að ganga frá því.
20250521_102703.jpg
20250521_102703.jpg (138.1 KiB) Skoðað 99 sinnum
Ég límdi 6mm ræmur af áli framan á framrúðuna. Ég set hugsanlega skrúfur í þetta síðar.
20250521_110804.jpg
20250521_110804.jpg (136.23 KiB) Skoðað 99 sinnum
Ég byrjaði að líma saman balsakubba á bakið á flugklefanum sem ég ætla svo að forma í glerkúpuna sem þarna á að vera.
20250521_120438.jpg
20250521_120438.jpg (131.45 KiB) Skoðað 99 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3865
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 104

Ég raðaði saman balsakubbum til að byggja upp gluggann á baki flugvélarinnar. Það borgar sig að geyma afskurði: þeir koma sér stundum vel.
20250522_101154.jpg
20250522_101154.jpg (143.11 KiB) Skoðað 84 sinnum
Hér er ég búinn að skera og hefla kubbana niður og losa í burtu allt sem ekki lítur út eins og rúða. Svo setti ég fylliefni á. Þegar það hefur þornað nota ég sandpappír til að fá þetta slétt. Svo kemur bara í ljós hvernig ég forma plastið.
20250522_114611.jpg
20250522_114611.jpg (142.65 KiB) Skoðað 84 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3865
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 105

Í dag náði ég að pússa niður fyllinn og setja aðra umferð af honum á. Svo límdi ég ramma utanum "gluggann" þar sem plastið á að ná útfyrir. Það verður svo notað til að líma hann á flugmódelið.
20250523_104859.jpg
20250523_104859.jpg (136.39 KiB) Skoðað 64 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3865
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 106

Ég boraði fullt af 0,8mm götum í rammana á framrúðunni og skrúfaði agnarsmáar skrúfur í þá. Svo sprautaði ég með silfur úða.
20250524_101403.jpg
20250524_101403.jpg (144.09 KiB) Skoðað 15 sinnum
Eftir að ég hafði pússað mótið fyrir bak gluggann, þá klæddi ég það með plastfilmu. Nú þarf ég bara að festa það kyrfilega niður og draga gluggaplast á það.
20250524_115057.jpg
20250524_115057.jpg (139.48 KiB) Skoðað 15 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara