Stampe et Vertongen á Dalvík

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Gaui
Póstar: 3880
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

04.06.25

Nokkur smáverk í Stampe, sem taka oft þó nokkuð langan tíma. Ég byrjaði á að setja teina í loftlúðurinn til að halda honum á skrokknum og límdi hann svo rækilega á rétta staðinn.
20250604_090950.jpg
20250604_090950.jpg (134.51 KiB) Skoðað 225 sinnum
Svo lóðaði ég rör á festingar fyrir fyllingu og yfirfall í tankinn.
20250604_095823.jpg
20250604_095823.jpg (140.14 KiB) Skoðað 225 sinnum
Ég festi dekkin á hjólastellið og að lokum penslaði ég parkettlakk á allan skrokkinn. Á morgun ætla ég að líma stýrifletina á. Þetta er verulega flott flugvél.
20250604_120456.jpg
20250604_120456.jpg (138.19 KiB) Skoðað 225 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3880
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

05.06.25

Ég límdi lamirnar í stélstýrin eins og ég lofaði og svo setti ég mótorinn á og tengdi allt sem þurfti að tengja: bensínslöngur, inngjöf, kveikju og svo framvegis. Aðgangur að innsoginu verður í gegnum opin framaná.
20250605_111333.jpg
20250605_111333.jpg (135.4 KiB) Skoðað 204 sinnum
Svo tengdi ég servó við stélstýrin og prófaði virkni þeirra. Rafhlöðurnar koma þarna framan við servóin (ef jafnvægispunkturinn lendir á réttum stað).
20250605_120439.jpg
20250605_120439.jpg (139.99 KiB) Skoðað 204 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3880
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

06.06.25

Stampurinn er að nálgast síðustu handtökin. Ég setti vængina á og dáðist að móelinu, sem er feikna fallegt, þó ég segi sjálfur frá.
20250606_142311.jpg
20250606_142311.jpg (139.44 KiB) Skoðað 176 sinnum
Þá gáði ég hvar vélin rambaði (betra orð en skrípið "ballanseraði"). Samkvæmt leiðbeiningum ætti hún að ramba á aftari vængboltum á efri væng, eða þar rétt fyrir framan -- ALLS EKKI AFTAR! Ég setti rafhlöður eins framarlega og mér var unnt og þá rambaði hún nokkurn vegin á réttum stað. Hér sést rafkerfið, frá vinstri: 6 V NiCad, straumbreytir, 1300mAh Lipo sem ég tengi við straumbreytinn. NiCad rafhlöðurnar eru fyrir kveikjuna og Lipo fyrir stýringuna. Ef ég set krossviðar þil fyrir aftan þetta, þá ætti þetta að sitja kyrrt á sínum stað.
20250606_144609.jpg
20250606_144609.jpg (136.72 KiB) Skoðað 176 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3880
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

07.06.25

Setti þil í Stampinn til að halda rafkerfinu. Svampur heldur við batteríin. Vængurinn rétt passaði á og heldur rafhlöðunum niðri. Nú vantar bara nokkur grömm í nefið til að vélin rambi á alveg réttum stað: aftari vængboltunum, og halli framávið frekar en afturábak. Það eina sem vantar núna eru framrúðurnar.
20250607_111736.jpg
20250607_111736.jpg (143.65 KiB) Skoðað 147 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3880
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

09.06.25

Í dag dúllaði ég við að klippa út og líma niður nýja glugga. Það sem fylgdi í kittinu var allt of þykkt og brothætt, og passaði engan vegin á módelið. Þessir gluggar sjást mjög illa og ég er að hugsa um að draga svart eða hvítt á brúnirnar og hornin þegar límið hefur náð að þorna.
20250609_112927.jpg
20250609_112927.jpg (145.21 KiB) Skoðað 110 sinnum
Ég reyndi líka að gera flugmanninn líkari Sigurjóni Valssyni en Williamsbróður. Það vantar bara að pússa leðurjakkann sléttan og setja á hann kraga.
20250609_115404.jpg
20250609_115404.jpg (139.93 KiB) Skoðað 110 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11701
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Sverrir »

Allt að gerast, lofar góðu!
Gaui skrifaði: 7. Jún. 2025 12:03:16 Setti þil í Stampinn til að halda rafkerfinu. Svampur heldur við batteríin.
Passaðu að það lofti um spennubreytinn, væri verra að hann ofhitnaði.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3880
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

11.06.25

Ég braut upp smávegis blý (Pb) og lét það passa í tvö hólf sitt hvoru megin við eldvegginn. Til að þetta færi ekki á flakk blandaði ég epoxý kvoðu með örperlum (microballoons) og hellti með því. Nú er balgvaníseringin (eins og inn félagi okkar kallaði það) nokkurn vegin tilbúin.
20250611_110200.jpg
20250611_110200.jpg (140.29 KiB) Skoðað 52 sinnum
Ég er búinn að fylla ;) og pússa flugkallinn og það síðasta sem ég gerði áður en ég grunnaði létt yfir hann var að búa til loðkraga. Hann er gerður úr bréfþurrku og fylliefni sem ég pikkaði á með oddhvössum grillpinna. Þetta verður fínt þegar búið er að mála það.
20250611_110234.jpg
20250611_110234.jpg (143.46 KiB) Skoðað 52 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3880
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstur eftir Gaui »

8-) 12.06.25

Stampurinn er liklega tilbúinn til flugs og því verður ekki meira um hann hér fyrr en það á sér stað.

8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara