Síða 2 af 3

Re: Intro Orange

Póstað: 14. Júl. 2009 23:45:22
eftir Sverrir
Svo mætti þessu upp úr hádegi á mánudag og þið vitið hvað gerðist svo. :)
Mynd

Og eitthvað í þessa átt lítur þetta út undir húddinu.
Mynd

Re: Intro Orange

Póstað: 14. Júl. 2009 23:52:27
eftir Sverrir
Reyndar voru frekar skrýtin skilaboð á vefnum hjá UPS þegar ég var að tjékka á pakkanum.
[quote=tracking page]SHIPMENT IS HELD DUE TO UNREALIST VALUE/WEIGHT RATIO, UPS WILL VERIFY VALUE WITH RECEIVER BEFORE CUSTOMS CLEARANCE[/quote]
Hvað ætli sé ásættanlegt verð per þyngdareiningu? :rolleyes:
En þar sem ég lét gera útflutningsskýrslu þá leystist þetta nú með einu símtali.

Mótorinn fór s.s. út 16.júní og daginn eftir var byrjað að saga spýtur. Mótorinn svo kom aftur 13.júlí og svo flaug vélin þá um kvöldið, ekki hægt að kvarta yfir því.

Mig langar svo að þakka Einari Páli kærlega fyrir aðstoðina og aðstöðuna, hefði ekki getað þetta á svona stuttum tíma annars.

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 00:21:07
eftir Flugvelapabbi
Þakka þer sömuleiðis að leifa mer að breyta utlitinu og raðskast með litina þetta var aldeilis frabært að vinna þetta með þer og gaman var að sja hvað hun er flott i loftinu, nu er bara farið að gera uppköst að algjörlega nyrri þotu þetta var svo fjari skemmtilegt, gangi þer vel með velina eg er farinn að hlakka til að sja fleiri flug hja þer Sverrir.
Kv.
Einar

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 00:36:51
eftir Sverrir
Nokkuð viss um að það eigi eftir að gerast. :)

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 00:37:56
eftir Ljoni
til hamingju með nýju þotuna lítur vel út. sá ekki einu sinni gömlu vélina en hún er öruglega ágætur eldiviður en vona að þessi fari ekki að leka þotu safanum annars geriru bara nýja virðist ekki vera mikið mál. en hlakka til að sjá hana í loftinu

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 00:44:38
eftir Sverrir
Þá er bara að rifja upp liðna tíma. ;)

http://modelflug.net/video/2009/23mars2009_intro.wmv

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 07:31:23
eftir Agust
Til hamingju Sverrir, -og líka Einar Páll :-)

Þetta er frábært afrek.

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 08:09:45
eftir Björn G Leifsson
Íðilflott hjá þér Sverrir. Til hamingju.
Að þú skulir vera að pukrast með þetta án þess að leyfa kkur að fylgjast með, fyrr en eftirá. En þú hefur væntanlega verið svo bissí að koma þessu saman...

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 08:16:11
eftir Þórir T
Þú ert ótrúlegur Sverrir, flott hjá þér að kýla bara á þetta og svo er nú alltaf skynsamlegast að hlusta á Einar Pál :-)
Til hamingju báðir tveir.

Re: Intro Orange

Póstað: 15. Júl. 2009 20:44:23
eftir Messarinn
Já til hamingju með þetta strákar og takk fyrir síðast. Alltaf gaman að koma í heimsókn til þín Palli og fljúga á Tungubökkum.
Hlakka til að sjá Þotuna fljúga hjá þér Sverrir
Mynd
Mynd

Kveðja Gummi