Vantar allan kraft....

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: Vantar allan kraft....

Póstur eftir Jónas J »

Jæja fór með mótorinn á rafeindaverkstæðið í vinnunni hjá mér og fékk strákanna til að prófa mótorinn og mæla og í ljós kom að hann er stein dauður. :( og hana nú.
Þá er bara að fara að setja pöntun í gang. :)


Kv Jónas J
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Nonni Helga
Póstar: 16
Skráður: 7. Jan. 2009 19:27:56

Re: Vantar allan kraft....

Póstur eftir Nonni Helga »

Sæll Jónas.
Hvar verslaðir þú þessa vél,hvað kostaði hún og er þægilegt að fljúga henni fyrir svona meðal aula?
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: Vantar allan kraft....

Póstur eftir Jónas J »

[quote=Nonni Helga]Sæll Jónas.
Hvar verslaðir þú þessa vél,hvað kostaði hún og er þægilegt að fljúga henni fyrir svona meðal aula?[/quote]
Sæll Nonni. Þessa vél fékk á notaða en var búinn að vera að spá í vél frá Heli-Max en hún hefði verið á c.a. 35 þús á klakann með öllum gjöldum. Vélin sem ég er með núna er mjög fín en svolítið villt. Ég mæli með Blade eins og hann Haraldur fékk sér um daginn, hún er mjög stöðug og fín víst.
Gangi þér vel. . . .


Kveðja.
Jónas J
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: Vantar allan kraft....

Póstur eftir Jónas J »

Jæja. Kína pöntunin komin og mótorinn kominn í og ný grind fyrir batteríið.
Tók eitt test flug heima í stofu í gærkvöldi og :) ahhhh :) :) hún flýgur eins og Engill :) :).

Loksins loksins getur maður farið að fljúga aftur :)

Mynd

Kveðja :) Jónas J :)
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Eysteinn
Póstar: 523
Skráður: 10. Jan. 2009 16:40:24

Re: Vantar allan kraft....

Póstur eftir Eysteinn »

Sæll Jónas,

Til hamingju! Ég þekki þessa tilfinningu.
Þú ættir svo að kynna þér innanhús klúbbinn, það verður samkoma næsta sunnudag.

Kveðja,
Eysteinn
Eysteinn Harry Sigursteinsson.

I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: Vantar allan kraft....

Póstur eftir Jónas J »

Já það væri gaman. ;)
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Svara