Það skiptir litlu máli hvort þú sért með JR eða Futaba, og það er varla einusinni smekksatriði heldur bara spurning um jahh, eitthvað annað. sjálfur er ég að uppfæra í Futaba 9Z vegna bling faktorsins, ekki það að 8 rása stýringin mín dugar mér ekki, ég hef aldrei tengt meira en 7 rásir og hún hefur öll þau prógröm sem ég hef haft þörf fyrir, mig BARA LANGAR Í 9Z
![Very Happy :D](./images/smilies/icon_e_biggrin.gif)
og ég veit ekki afhverju.
ég á erfitt með að ímynda mér hversvegna maður getur þurft fleyrri en 8 rásir meirasegja, rásirnar eru svona:
1. left/right cyclic (hallastýri)
2. fore/aft cyclic (hæðastýri)
3. throttle (bensíngjöf)
4. tailrotor pitch (rudder)
5. govenor rpm (snúningur mótors)
6. collective (skurður)
7. gyro sens (næmni gyrós)
8. hér er ekkert standard, en stundum notað í:
i. mixtúra á mótor
ii. uppdraganleg hjól
iii. sleppibúnað fyrir load
iv. ljós eða álíka
Flestir byrjendur notast bara við rásir 1, 2, 3, 4, 6 (og 7 ef þeir eru með góð gyro) sem eru bara sex rásir þannig að 6 rása stýring dugar fínt, en það er ekki pláss fyrir tildæmis govenor nema hafa hann á forstiltum snúning sem er svosem altílagi.
en níu rása stýringar geta verið svolítið 'overkill', sérstaklega fyrir byrjendur
ég mæli því aftur með því að þú kaupir stýringuna mína svo ég geti fengið mér 9Z og aukið við blingfactorinn hjá mér
En það skiptir semsagt minna máli hvort þú sért með JR eða Futaba, ég og jón fljúgum Futaba, en benni og moe fljúga JR, en allir geta aðstoðað þig með hvort sem er.
Hitt er annað mál að varðandi þyrlurnar þá borgar sig að fá sér eitthvað sem aðrir eru með í klúbbnum, og þar er Raptorinn lang vinsælastur, en einnig eru menn að fljúga Hirobo Freyju, Century Predator, Align T-rex, JR Venture (engin að fljúga Futaba þyrlu) , Kyosho Caliber og Nexus og öðru því sem menn komast yfir.
Annars er modex.is með gott verð á Century Hawk Pro þyrlu og er ég alveg viss um að þú gætir fengið alla þá aðstoð sem þú þarft ef þú færð þér svoleiðis grip.
Hvernig þyrlu þú ættir að fá þér fer svolítið eftir því hvað þú ætlar að gera í sportinu, ef þig langar bara til að ná tökum á fluginu þá mæli ég með Hawk Pro, ef þú stefnir á 3D listflug (og ég mæli með því) þá mæli ég með Raptor, ef þú stefnir í klassískt listflug mæli ég með Freyu, ef þú stefnir í scala flug þá veit ég ekkert með hverju maður ætti að mæla, kannski einhverju Hirobo, ef þú stefnir í jet engine flug þá mæli ég bara með því að þú fáir þér aukavinnu.
nú hef ég mælt nóg.