Hvar fáið þið hvíta stykkið sem heldur servo leiðslunum föstum við búkinn?
Stykkið sem maður setur bensli í .
Re: 35% Yak 54
Póstað: 31. Ágú. 2010 12:43:52
eftir Sverrir
Íhlutum.
Re: 35% Yak 54
Póstað: 31. Ágú. 2010 23:56:26
eftir INE
... og þá var komið að mótor og eldvegg:
DLE111 kominn úr kassanum:
Borað fyrir boltum sem fara í ál vinkla á eldveggnum:
Síðan var límt með Hysol:
.. og mótorinn festur á vegginn:
Örlítil kunst var að koma "mufflers" á því að skrúfa þurfti þá í gegnum rörið en það hafðist með framlengingu ofan á framlengingu. Handlangarinn fékk aftur skömm í hattinn fyrir lélegann skrúfjárna lager:
Síðan hófst vinna við cowlingu. Hérna er búið að gera skapalón:
Útskurðurinn undirbúinn:
Síðan smell passaði hún á :
Throttle servo (DS821) komið fyrir:
Kveikjan komin á sinn stað:
Kill Switch:
LED sem logir ef kveikjan er virk:
Eldsneytiskerfið tilbúið. Allir slöngu endar festir með "aviation grade safety wire"
Síðan héllt vinna áframm við rafkerfið, Flight Log tengt við móttakara:
Sökum þess það eru 3 vængboltar hvoru meginn þá komu ekki alltof margir staðir til greina varðandi staðsetningu rafhlaðnanna. Sverrir Uber Designer kom með þessa snilldarlausn:
Smíðuð var "brú" fyrir framann bensíntank:
og önnur ofan á vængrörið:
Hér er síðan proppur (27-3DB) og Carbon Fiber spinner kominn á:
..og áfram sjá Pólverjarnir um að hlífa okkur:
Nú var farið að leggja lokahöndina á verkið. Hjól og hjólaskálar:
Fréttavefs límmiðarnir koma sérstaklega vel út:
og svo Klúbbmerkið:
Hérna fór undirritaður að verða ansi spenntur, skildi vélin passa í fjöldskyldubílinn? Fræðilega átti hún að gera það en hversu þægilegt væri að eiga við hana?:
Sem sagt: eins og flís í rass eða Rússi í Frakka...
Síðan var allt sett samann og hér Vélin klár:
Mótor settur í gang í fyrsta sinn:
Yfirsmiður og Yfir Hönnuður: Sverrir
Eigandi: Glitnir Fjármögnun / Ingólfur.
Samtals tók samsetningin ekki nema um það bil 30 klukkutíma en hefði verið margfallt lengri ef ég hefði ekki haft jafn frábæran fagmann eins og Sverri með mér í þessu. Það var mjög lærdómsríkt að sjá hann að störfum. Hvert einasta handtak var unnið að mikilli vandvirkni enda sést vel á myndunum hversu vandað var til verksins. Kann ég Sverri allar mínar bestu þakkir!
Í næsta þætti verður svo frumflogið, stay tuned...
Kveðja,
Ingólfur.
Re: 35% Yak 54
Póstað: 1. Sep. 2010 00:08:50
eftir Sverrir
Það var nú lítið, alltaf gaman að vera með í skemmtilegum verkefnum!
Re: 35% Yak 54
Póstað: 1. Sep. 2010 07:51:32
eftir maggikri
Flottir!
Til hamingju með þetta!
Fréttavefslímmiðarnir passa vel við trim scheme-ið
kv
MK
Re: 35% Yak 54
Póstað: 1. Sep. 2010 08:41:15
eftir Agust
Til hamingju með þennan fallega grip.
Er það ekki rétt skilið Sverrir að þú hafir útbúið servósnúrur og tengi? Þú ættir að segja okkur meira frá því, þ.e. hvar þú fékkst efnið o.s.frv.
Re: 35% Yak 54
Póstað: 1. Sep. 2010 10:15:24
eftir Sverrir
Ingólfur keypti snúrur og tengi frá Ali, og ég setti það saman fyrir hann, notaði hátt í 7 metra af snúnum vírum í vélina. Ég hef búið til snúrur í nokkur ár og svo sem ekki frá miklu að segja nema það hvað þetta er mikið þægilegra að vera ekki að flækjast um með marga metra af umfram vír. Tengin eru klemmd utan á vírana með þar til gerðri töng og svo stungið upp í húsin.
Vírarnir strippaðir.
Tengið klemmt létt á vírinn.
Tengið krumpað á.
Svona lítur það út eftir krumpun.
Tengin sett í hús.
Töng
Re: 35% Yak 54
Póstað: 1. Sep. 2010 10:19:56
eftir Sverrir
[quote=maggikri]Fréttavefslímmiðarnir passa vel við trim scheme-ið[/quote] Það er fleira sem passar vel við scheme-ið.
Re: 35% Yak 54
Póstað: 1. Sep. 2010 10:33:09
eftir Sverrir
Bensínslöngur henta vel þegar þarf að halda skrúfum föstum við skrúfjárn í myrkviðum hæðarstýra.
Til að spara rás á hæðarstýrinu þá var merkjavírinn fyrir hæðarstýrisservóin sameinaður og hinu plögginu var stungið í ónotaðan útgang á móttakaranum til að fá afl.
AR9200 móttakarinn er svaka græja en þetta er afldreifikerfi, með spennustillum svo hægt er að nota LiPo, síur á merkjavírunum og PB Sensor rofa.
Hmmm, þetta minnir mig á eitthvað...
Ah, já!
Re: 35% Yak 54
Póstað: 1. Sep. 2010 14:04:18
eftir Jónas J
Stórglæsilegt hjá ykkur. Það verður gaman að sjá þessa í loftinu......