Síða 2 af 5
Re: RV-4 smíði
Póstað: 15. Des. 2010 12:37:56
eftir Pitts boy
Re: RV-4 smíði
Póstað: 15. Des. 2010 12:49:52
eftir Gaui
Það er heldur ekki samam sannir íslenskir rakkar með herraklippingu og útlenskar kellingar
Re: RV-4 smíði
Póstað: 15. Des. 2010 14:19:40
eftir Pitts boy
hehe... abbababb.... við skulum átta okkur á því að þetta er Bresk hefðar lady og hún er eins og önnur lady ef það er ekki eitthvað sem gleður augað (að vísu nefið í hennar tilfelli
) þá fer hún bara og tekur sér blund, er ekki að éta einhvern ógeðslegan balsa upp af gólfinu (Enda voru forfeður hennar í eigu þeirra sem fundu upp Rolls Royce og Supermarine Spitfire og henni alls ekki samboðið að éta upp úr gólfinu hehe...
)
Re: RV-4 smíði
Póstað: 20. Des. 2010 17:43:19
eftir Pitts boy
Jæja þá úr hundum og aftur að smíða borðinu.
Ég er búin að vera að dunda mér við að dúka vængin að neðan og væng endana.
ég valdi ekki alveg auðveldasta dúkinn í þetta en það viðris ætla að verða skammlaust
)
Set hér inn þrjár myndir til gamans.
þetta hafðist bara þokkalega og mynstrið passar meira að segja nokkuð vel
Re: RV-4 smíði
Póstað: 20. Des. 2010 19:29:32
eftir Gaui
Settu nú sama mynstrið á botninn á skrokknum og láttu hann passa við: það er gert hér fyrir norðan
Re: RV-4 smíði
Póstað: 20. Des. 2010 21:12:08
eftir Pitts boy
Úfff.. jaaáá... :/ hehe... ég er nú búin að snúa mig út úr því, setti köflótt neðan á stélið en hvítt neðan á skrokkinn
Maður reynir að vera skynsamur stundum og stökkva ekki beint út í djúpu.
Re: RV-4 smíði
Póstað: 21. Des. 2010 11:41:54
eftir Árni H
Flott vél hjá þér! Vinnuborðið þitt er líka flott...
Re: RV-4 smíði
Póstað: 10. Jan. 2011 17:12:11
eftir Pitts boy
Jæja þá koma nokkrar myndir og aðeins búið að gera.
Ég þræði oftast spotta út í vænginn til að draga (Servo) vírana í vængin (Svo sem ekki ný vísindi en gaman að sýna það samt).
Ég nota yfirleitt Robart lamir þegar ég smíða, þær hafa reynst mér vel og eru þjálar og sterkar. Set örlítið Vaselín inn í miðjuna (þolinmóðinn) til að varna að lím festi liðin þegar ég lími þær í sætið sitt. Ég slípa pinnann með fínum sandpappír til að taka gljáann af og límið nái festu við pinnann.
Og svo nota ég urethan lím til að festa þær í. Ég nota litla sprautu fyrir límið til að ná að setja mátulega
lítið lím í gatið fyrir lömina (því ef maður setur mátulega
mikið ) þá fer allt út um allt hehe....
Re: RV-4 smíði
Póstað: 27. Feb. 2011 14:22:43
eftir Pitts boy
það er alltaf verið að pota smá í RV-inn
Er búin að setja stýri fletina á bæði væng og stél og servo komin í skrokk og væng og bensíntankur á sinn stað og mótorinn á eldveggin.
Nú er komið að því að setja gróðurhúsið ofan á skrokkinn. Ég hef verið í hálfgerðu brasi þegar ég set kúpuna svona beint ofan á skrokkinn á vélum, mér finnst alltaf eins og ég verið að skrúfa hana (ekki bara líma) hvað segið þið um það módel smiðir þarna úti hvernig er best að festa gler kúpu svona beint ofan á skokk?
Re: RV-4 smíði
Póstað: 27. Feb. 2011 20:38:33
eftir Þórir T
Ég myndi setja smá spurningamerki við að nota plast clevisana í stél stýrin, mér hefur aldrei líkað
við þá, þrátt fyrir að þeir fylgji ansi oft nýjum módelum...
Varðandi gróðurhúsið, þá er ég nú eiginlega sammála þér með skrúfuþörfina, en það er kannski
vegna þess að maður hefur þurft að leita og vaða eftir canopyum þegar þetta verður gamalt og stökkt, og hrekkur af á flugi...
En annars virkilega smart hjá þér!