Síða 2 af 2

Re: "Mjúkstart" á startara

Póstað: 7. Maí. 2012 13:28:56
eftir Agust
[quote=Ingþór]Takk fyrir góð og fróðleg svör...

væri möguleg hægt að taka takka úr skrúfborvél og setja í staðinn fyrir startara takkann?[/quote]

Hvernig væri að prófa að setja rétt stykki í patrónuna á góðri batteríborvél sem er með hraðastýringu og nota hana sem startara? Er hún ekki nægilega öflug?

Re: "Mjúkstart" á startara

Póstað: 7. Maí. 2012 14:07:45
eftir Jónas J
Ég veit um mann sem gerði það með góðum árangri :)

Re: "Mjúkstart" á startara

Póstað: 7. Maí. 2012 14:45:46
eftir Ingþór
[quote=Agust]
Hvernig væri að prófa að setja rétt stykki í patrónuna á góðri batteríborvél sem er með hraðastýringu og nota hana sem startara? Er hún ekki nægilega öflug?[/quote]

Nei, mín er allavega ekki að duga í að starta .91 mótor og á í vandræðum með .50 mótor þegar hann er kaldur.
Svo er líka ægilega kjánalegt að vera með borvél til að setja í gang þegar maður á svona fínann startara.

en ég er búinn að verða mér úti um þetta:
Mynd

Þá er bara að sjá hvað gerist þegar maður tengir þetta milli startara og batterís.

Re: "Mjúkstart" á startara

Póstað: 7. Maí. 2012 14:56:35
eftir Sverrir
18V DeWALT er örugglega málið, tekur 35cc mótora leikandi. ;)

Mynd

Re: "Mjúkstart" á startara

Póstað: 7. Maí. 2012 16:34:47
eftir Björn G Leifsson
Um að gera að prófa þetta Ingþór. Þó held ég að þetta sé ekki púlsgjafi heldur einfaldur stillanlegur spennustillir (voltage regulator).
En hvað sem þessu líður þá getið þið bókað að ég á eftir að gera tilraunir með svona mjúkstart einhvern rigningardaginn þegar ég er kominn í frí. Þó ekki nema til að bæta minn eigin startara. Búinn að finna teikningar og vantar bara MOSFETann og nokkur viðnám að ég held. Hugmyndin er að fá út úr þessu græju sem sjálfkrafa eykur kraftinn í startaranum á ca einni sekúndu upp í fullt. Ef vel tekst til þá getur vel verið að Ingþór fái fyrsta framleiðslueintakið ;)

Ojæja.
Fínt flugveður hér í Osló... Neh, best að hætta að væla :D