Síða 2 af 3

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 5. Maí. 2012 23:16:54
eftir Gaui
[quote=Björn G Leifsson]Verð að segja að mér líst vel á mótorinn. Alger unun þessi YS .63[/quote]

Ég er líka búinn að fá mér batterí og glo-driver frá SM Services í Englandi til að halda hita á mótornum. Búinn að prófa það áður og það þrælvirkar.

:cool:

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 6. Maí. 2012 07:55:10
eftir Björn G Leifsson
[quote=Gaui][quote=Björn G Leifsson]Verð að segja að mér líst vel á mótorinn. Alger unun þessi YS .63[/quote]

Ég er líka búinn að fá mér batterí og glo-driver frá SM Services í Englandi til að halda hita á mótornum. Búinn að prófa það áður og það þrælvirkar.

:cool:[/quote]
Ekki slæm hugmynd. Minn hefur reyndar aldrei hikstað nema einu sinni eftir langa geymslu og þá skipti ég um blöðku í regúlatornum.

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 6. Maí. 2012 17:51:06
eftir Gaui
Nú er ég búinn að raða fullt af balsa í kringum nebbann og gróf hefla hann til. Svo skar ég helling í burtu þar til mótorinn datt á sinn stað. Nú þarf ég bara að fínpússa þetta og fara svo að klæða.

Mynd

:cool:

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 6. Maí. 2012 17:56:37
eftir Flugvelapabbi
Sma athugasemd Gaui,
i þa gömlu goðu daga notuðu menn"TWOSTROKE"
Kv
Einar Pall

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 6. Maí. 2012 18:55:19
eftir Gaui
Já, Palli, ég bara átti þennan mótor og vildi nota hann frekar en að kaupa mér nýjan.

Ef í hart er farið og hár togað, þá eru tvígengis mótorar dagsins í dag allt annað en tvígengis mótorar þegar við vorum ungir :D

:cool:

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 6. Maí. 2012 23:17:33
eftir Flugvelapabbi
Rett er það en þetta var nu bara sma grin, ju þu hefur haft gaman að grini er það ekki ?
Kv
Epe

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 7. Maí. 2012 00:36:34
eftir Gaui
Nærist á því!

:cool:

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 7. Maí. 2012 21:25:03
eftir Gaui
Bara smá meira í nebbanum. Ég á svakalega fín útskurðarjárn og mér datt í hug að nota þau til að hreynsa til innan í mótorhúsinu svo þar væri ekki meiri viður en nokkurn vegin þyrfti að vera þar. Það er að segja, ekki bara hefla og pússa að utan, heldur líka að innan:

Mynd

Og svo, áður en ég löðra epoxýi um allt, þá málaði ég með dökk-gráu innan í mótorhúsið. Það verður þá minna áberandi.

Mynd

Og bæ ðö vei, áður en einhver spyr, þá er þetta bara utanhússmálning. Ég set svo epoxý yfir hana, svo það er sama hvaða málning þetta er!

:cool:

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 13. Maí. 2012 19:37:42
eftir Gaui
Þá er komið að vængnum og auðvitað varð að gera vídeó:





Svo geri ég einhverja umföllun um balsaklæðninguna og frágang á vængnum.

:cool:

Re: Kwik-Fly endurnýjuð

Póstað: 13. Maí. 2012 21:56:25
eftir Guðjón
Ég á eftir að gera þetta einhvern daginn.

Ertu með þráð á spjallinu með öllum smíðamyndböndum?