Nú þekki ég ekki alveg nóg inn á öll þessi tíðna svið, en hvernig er það nú er ég búin að finna ódýran sendir og mótakara á 5.8GHz. Rásirnar sem hann er á eru :
Þarna er bara ein rás sem er innan þessara 5725-5875 MHz. Gæti það orðið vandamál eða er í lagi bara að stilla á rás 2 og málið er leyst?
Varðandi drægninna held ég að 300-400 metrar í sjónlínu væri meira en nóg til að byrja með. Ég er aðallega að hugsa þetta til að ná góðum og flottum loft myndum bæði af nátturunni og fyrir stuttmyndir.
Re: quadcopter og fpv
Póstað: 19. Júl. 2013 00:42:16
eftir Agust
Sæll Steinn
Ég held að þetta verði í góðu lagi hjá þér. Þú ættir að láta okkur vita hvernig gengur, t.d. hver drægnin er, hvaða búnað þú notar, o.s.frv.
Myndir eru alltaf velkomnar hér
Sjálfur hef ég ekki enn prófað FPV en sett GoPro2 í svifflugu:
Gangi þér vel.
Re: quadcopter og fpv
Póstað: 22. Júl. 2013 14:58:59
eftir Valgeir
[quote=Björn G Leifsson][quote=Valgeir]Það er reindar ein tíðni á 1,3 sem er lögleg á íslandi...[/quote]
Ekki eftir því sem ég kemst næst. Hefurðu fengið þetta staðfest? Og þá hvaða tíðnisvið nákvæmlega?[/quote]
það getur reindar hafa verið mis minni, finnst samt eins og að í einhverjum að þessum þráðum sem hafa komið upp höfum við komist að því að það var 1,36, er ekki rétt að radíóamatöra eru bara með leifi til 1,35