Síða 2 af 2

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 8. Ágú. 2016 17:34:55
eftir Gaui
Úpps -- rangur misskilningur hjá mér!

:cool:

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 8. Ágú. 2016 17:59:17
eftir Árni H
Þá er það bíómyndin. Engin tónlist í þetta sinn, bara vélahljóð og vængjaþytur :)

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 8. Ágú. 2016 19:46:32
eftir Steinþór
Flott biómynd hjá þér Árni, þetta var góður dagur á melunum
takk fyrir mig
kv Steini

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 8. Ágú. 2016 23:15:42
eftir Flugvelapabbi
Flottar video Arni,
ekki eydileggja videoin med einhverri tonlist, notadu umhverfishljod þad gefur mesta tilfynningu.
Eg vil þakka ykkur nordanmonnum fyrir frabæra helgi.
En og aftur TAKK
kv
Einar Pall

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 9. Ágú. 2016 00:25:09
eftir Guðni
Flott samantekt Árni..þakka öllum fyrir frábærann dag...:)

Kv. Guðni Sig.

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 9. Ágú. 2016 08:02:43
eftir Böðvar
Yndislegt veður og frábær flugkoma í alla staði hjá FMFA , og við Fríða og hundurinn Simbi þökkum innilega fyrir okkur. Hér er kvikmyndin mín með fókusinn á mannskapinn þessa frábæru félaga, módelin eru flott en þið eruð flottari. Allar tökur eru teknar með kvikmyndadrónanum mínum og hjálpartækjum sem honum fylgja. Dróninn er hljóðlaus því þarf ég að vera með sér hljóðupptöku H1 ZOOM (takk fyrir ábendinguna Árni H.) og synka hljóð og mynd með gömlu aðferðinni taka 1-2-3 og klappa. Þakka öllum sem koma fram í þessari kvikmynd og sérstaklega Guðjóni Ólafssyni.

Athugið til að njóta fullra myndgæða stillið á HD 1080p



Guðjón algjörlega óborganlegur í atriði: taka 3 timi 5:18

kær kveðja Böðvar

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 9. Ágú. 2016 09:56:21
eftir Gaui
Skemmtileg mynd, Böðvar -- gerum þetta aftur!

:cool:

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 13. Ágú. 2016 07:16:56
eftir Böðvar
Guðjón skrifaði
[quote]Skemmtileg mynd, Böðvar -- gerum þetta aftur!
cool[/quote]

Auðvelt að gera skemmtilega mynd með skemmtilegu fólki ! -- Já Guðjón, aftur og aftur.


Kv. Böðvar

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 13. Ágú. 2016 17:03:44
eftir Haraldur
Hrikalega var þetta skemmtileg mynd Böðvar. Ef ég varpa þessu upp á stóran skjá þá er eins og maður sé kominn á staðinn.

Re: Melgerðismelar - 6.ágúst 2016 - Flugkoma FMFA

Póstað: 23. Jan. 2017 15:55:17
eftir Sverrir
Hreyfimyndir frá flugkomunni, gjörið svo vel!