Síða 2 af 3

Re: Reynsluflug

Póstað: 10. Maí. 2007 23:46:54
eftir maggikri
Þessi rauða átti líka að fara í testflug í kvöld. Fór ekki í loftið en taxeraði á vatninu. Þarf eitthvað að skoða flotbúnaðinn, ofl.

Mynd

Gunnar og Sverrir voru líka. Svo var auðvitað flotfogið og líka á flugvellinum. Multisvæði.
Mynd

Ein svo af vélinni hans Gunna
Mynd

Og ein af Sverri.
Mynd

Re: Reynsluflug

Póstað: 11. Maí. 2007 00:06:20
eftir Sverrir
Vídeó af Seamaster flugi Steinþórs > http://frettavefur.net/video/2007/Seama ... stflug.wmv

Re: Reynsluflug

Póstað: 11. Maí. 2007 01:11:35
eftir Sverrir
Þessi rauða :)

Mynd

Mynd

Re: Reynsluflug

Póstað: 11. Maí. 2007 01:46:02
eftir Sverrir
Þessi gula.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Reynsluflug

Póstað: 11. Maí. 2007 01:49:25
eftir Sverrir
Þessi hvíta að lenda á Vatnsenda, Albert við stýrið.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Reynsluflug

Póstað: 11. Maí. 2007 11:00:21
eftir Agust
Þið fljúgið þarna af vatni og flugbraut. Næstum fullkomið. Vantar ekki tilfinnanlega snjóframleiðsluvél svo hægt sé að fljúga líka skíðaflug?

Re: Reynsluflug

Póstað: 11. Maí. 2007 11:03:40
eftir Sverrir
Notum grasið í það ;)

Re: Reynsluflug

Póstað: 12. Maí. 2007 09:03:29
eftir maggikri
Þessi rauða úðar alltof mikið upp á sig. Flotin eru sennilega of stutt og ná ekki nógu langt fram fyrir mótorinn. Þetta er náttúrulega ekkert eðlilegt hvernig hún úðar út um alla vél.
Mynd

Re: Reynsluflug

Póstað: 12. Maí. 2007 14:08:56
eftir Gaui K
Flottar myndir samt :)

Re: Reynsluflug

Póstað: 12. Maí. 2007 14:54:11
eftir Gaui
Þegar ég sá þessa rauðu vera að þvo sér datt mér í hug að það væru ekki öll má á hreinu hjá henni. Því fór ég og fletti upp í Gúrúinum David Boddington og fann þessar tölur:

Lengd á flotum: 75-80% af skrokklengd módels.
Þrep á flotum: milli 45 og 55% af flotunum (á miðju)
Bil á milli flota: 25% af vænghafi (þá er módleið vel stöðugt)
Staðsetnig flota: þrep rétt fyrir aftan þyngdarpunkt.
Áfallshorn flota: 0° miðað við væng

Boddington skrifar:
"Á mynd 1 situr módlið kyrrt á vatninu. Þegar gefið er inn, þá fer módelið af stað og framendar flotanna lyftast upp úr vatninu eins og á mynd 2. Á flugtakskeyrslu halda flotin áfram að lyftast þar til þau komast ekki hærra eins og sést á mynd 3, en þá er bara þrepið og aftari fláinn enn í vatninu. Að lokum, ef þyngdarpunktur er fyrir framan þrepið, þá kinkar módelið fram og flotin plana eins og sést á mynd 4. Drag minnkar gríðarlega við þetta, hraði módelsins eykst mikið og það nær flughraða á skömmum tíma. Þegar örlítið er takið í hæðarstýrið lyftist módelið af vatninu og flýgur."

Mynd

Það er mikilvægt að þyngdarpunkturinn sé örlítið fyrir framan þrepið til að módelið fari ekki að fljúga áður en flughraða er náð og flotin ná að plana. Ef þyngdarpunkturinn er fyrir aftan þrepið, þá rífur vélin sig upp um leið og flotin leggjast á aftari fláann (sjá mynd 3) og er þá tæplega að fljúga og "tippstollar" oní vatnið -- sem er ekki mjög gott.