Síða 2 af 2

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 7. Jún. 2007 23:55:05
eftir kip
Þá styttist í jómfrúarflugið :)

Mynd

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 8. Jún. 2007 00:10:23
eftir Offi
Magnað! Þú póstar víðjói þegar hún er flogin?

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 8. Jún. 2007 00:29:40
eftir kip
Ef það verður vídjóvél á staðnum ;)

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 8. Jún. 2007 00:31:05
eftir Sverrir
Er ekki morgundagurinn kjörinn í það ;)

Lítur vel út. :cool:

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 8. Jún. 2007 23:01:16
eftir einarak
hlítur að vera geggjuð flugvél, allavega er gaurinn helvíti hress í framan

Mynd

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 10. Jún. 2007 23:51:53
eftir Sverrir
Jæja, í morgun var komið að stóru stundinni. Kipparinn mætti galvaskur út á völl eftir langa yfirlegunótt við að fínpússa gripinn.
Ég læt hann annars um það að skrifa lýsingu á fyrsta fluginu en hérna koma nokkrar myndir sem ég tók.

Samsetning. Takið eftir smíðaþynnkugleraugunum.
Mynd

Rúllað út á braut.
Mynd

Flugtaksbrun.
Mynd

Flugtak.
Mynd

Framhjáflug.
Mynd

Meira framhjáflug.
Mynd

Hann skalf ekki einu sinni.
Mynd

Sýnir vænginn.
Mynd

Framhjáflug.
Mynd

Mjög flott.
Mynd

Aðflug.
Mynd

Lending.
Mynd

Meiri lending. :rolleyes:
Mynd

Stórglæsilegt.
Mynd


Jæja þá eru lýsingarorðin uppurin í bili. ;)

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 10. Jún. 2007 23:58:42
eftir kip
Ég flaug jómfrúgarfluginu í morgun og svo í allan dag fram á kvöld. 2400mah nimh rx batterýið var á grænu ennþá þegar ég hætti sem er ansi magnað. (reyndar á nimh að geta dottið fyrirvaralaust í rautt).
Það þurfti ekkert að trimma nema hæðarstýrið. Þetta er fyrsta bensínvélin mín og einnig stæsta módelið sem ég á. Ég svosum sé ekki margt betra við meiri stærð á flugmódeli fyrir utan svona meiri fýling að maður sé með alvöru stöff í höndunum en á móti kemur að ég var klukkutíma í kvöld að reyna að finna út hvernig ég átti koma skrokknum fyrir í geymslunni. Vélin flýgur fullkomið en myndi ekki sparka stærri mótor framúr. Næst á dagskrá er að koma þristinum í loftið áður en vetrar.

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 10. Jún. 2007 23:59:03
eftir Björn G Leifsson
Þetta er eins og með sumar vel formaðar konur.... augun dragast einhvern veginn ósjálfrátt að afturendanum :D

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 11. Jún. 2007 00:00:07
eftir kip
Góður björn :D

Takk fyrir myndirnar Sverrir, fínar!

Heyrðu sverrir þessar lendingarmyndir, mér sýnist þetta vera fyrsta lendingin, magnað að sjá myndir af því.
Ég ætlaði svosum ekki að lenda en var svona að prófa svifið og fann bara hvað það stefndi í flotta lendingu og út kom þessi *fullkomni sokkur :D
*(ekki inn á braut reyndar)

Ég vil að það komi fram hér á spjallinu að Guðjón nokkur Ólafsson lagi á sig mikla vinnu og þolinmæði að leiðbeina mér og hjálpa í samsetningunni :D Takk Gaui ;)

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 11. Jún. 2007 00:10:28
eftir Sverrir
Verði þér að því :)

Þú ættir svo að geta linað mótorinn aðeins.