Síða 2 af 2

Re: Inniflug - rafmagnsflug

Póstað: 16. Nóv. 2007 16:40:51
eftir ErlingJ
kostar eithvað að taka þátt í svona flugi?

Mynd

eignaðist svona fyrir nokkru en hef ekki haft tíma né þor til að fljuga

Re: Inniflug - rafmagnsflug

Póstað: 18. Nóv. 2007 19:09:54
eftir Haraldur
Þetta var allveg frábær dagur og heppnaðist í alla staði mjög vel,
þrátt fyrir nokkur kröss.

Á staðnum var eftirfarandi flugfloti:
3 x blade CX2, (Haraldur, Þorgeir, Haukur)
1 x UFO (Haraldur)
1 x mini þyrla sem Frímann var með
1 x Lama sem Benni var með.
3 x inni rafmagns flugvélar. (Brynjar, Vinur hans, Hjörtur)
1 x TREX 600 sem Benni var að sýna, flaug henni ekki


Tvær flugvélanna urðu fljótlega óflughæfar og sú þriðja í fyrsta flugi.
Hjörtur flaug af stað beint upp í rjáfur þar sem hann parkeraði flugvélinni sinni, og náðist hún ekki niður þrátt fyrir ýmsar tilraunir með að kasta hlutum í hana og fljúga á hana, fyrr en húsvörður potaði í hana frá loftbitunum.

Nokkur blöð voru útskift á Blade eftir litrík kröss.

Benni krassaði sinni þyrlu þegar hún vildi ekki stoppa að hans sögn.

UFO sýndi nokkur tilþrif og fór nokkrar kollhnísa en slapp þó heil eftir daginn.

Bíðum bara eftir myndum frá Brynjari sem voru teknar á staðnum

Re: Inniflug - rafmagnsflug

Póstað: 19. Nóv. 2007 16:09:20
eftir HjorturG
hi hi hi hi :D

Re: Inniflug - rafmagnsflug

Póstað: 19. Nóv. 2007 17:14:43
eftir ErlingJ
ég sé að það var eins gott að mér var ekki svarað og ég kom ekki, mín er þá allavegana heil upp í hillu :)

Re: Inniflug - rafmagnsflug

Póstað: 25. Nóv. 2007 11:27:14
eftir einarak
er inniflug í dag??

Re: Inniflug - rafmagnsflug

Póstað: 30. Nóv. 2007 14:51:11
eftir Björn G Leifsson
Voru einhverjir þarna á sunnudaginn?

Þið hafið væntanlega tekið eftir þæðinum sem Hjörtur setti af stað. Það er mikill áhugi fyrir að koma sér betur í gang með inniflug.