Síða 11 af 18
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 21. Maí. 2009 13:40:59
eftir Árni H
Flott mælaborð!
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 21. Maí. 2009 21:26:34
eftir Valgeir
flott módel Gaui og smáatriðin ótrúleg
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 27. Maí. 2009 18:40:42
eftir Gaui
Smá framfarir með Tigerinn:
Rammarnir fyrir framrúðurnar komu til skornir úr 0,8mm krossviði og það eina sem ég þurfti að gera var að skera í þá til að hliðar-rúðurnar væru til hliðar. Síðan setti ég til beygt ál á hornin til að styrkja rammana og til að þeir dyttu ekki í sundur. Svo límdi ég þetta lauslega á skrokkinn:
Til að festa rammana almennilega, og fá einhvers-konar gluggafestingar niður á skrokkinn, þá límdi ég nokkur lög af límbandi þrjá millimetra frá römmunum.
Svo blandaði ég upp slummu af P38 og smurði á rammana og niður á skrokkinn:
Þegar ég var búinn að pússa þetta niður leit það svona út:
Ég fór í gær og sótti málninguna mína niður í Litaland. Þeir voru búnir að blanda fyrir mig fullt af málningu og sögðust vera búnir að skrá alla bresku litina, svo ef einhvern vantar málningu, þá er nóg að hringja í þá. Þetta virðist vera hellingur fyrir svona lítið módel:
Ég gat ekki beðið með að sletta smá málningu á módelið svo ég gróf upp gömlu góðu sprautukönnuna mína:
og sullaði tveim umferðum af gulu á stífurnar:
Ég held að ég þurfi að setja minnst fjórar umferðir af gulu til að fá almennilega þekju
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 27. Maí. 2009 23:39:13
eftir Árni H
Það er eins og þú sért að fara að mála gjörvalla Grísará en ekki eitt flugmódel
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 28. Maí. 2009 15:08:19
eftir Messarinn
Jáásææælll
sprautaðir þú ekki hvítan grunn fyrst manni?
kv
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 28. Maí. 2009 16:53:55
eftir Gaui
Grunnurinn er Silfur. Mér datt í hug að setja hvítt fyrst, en þá hefði ég bara þurft eina umferð af hvítu og þrjár af gulu. Eins gott að setja bara fjórar af gulu.
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 28. Maí. 2009 23:14:35
eftir Guðjón
mig er faið að klæja í augun að sjá þessa vél fullkláraða
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 29. Maí. 2009 10:30:39
eftir Gaui
Þú ert ekki einn um það að klæja, en eins og allir vita, þá klæjar á öðrum stöðum hér fyrir norðan
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 29. Maí. 2009 18:21:04
eftir Gaui
Guðjón
Það verður gaman þegar hún flýgur -- maður fær alveg extra spennuskot að sjá nýtt módel fara á loft. En ég held það verði hugsanlega ekki fyrr en í haust. Kannski á flugdaginn okkar, en ég lofa engu.
Re: 30% Tiger Moth
Póstað: 30. Maí. 2009 13:27:09
eftir Gaui
[quote=Guðjón]geturu sett inn mynd ...hvert þú ert kominn og kannki gert pínu lista yfir það sem er eftir?
[/quote]
Mynd kemur eftir helgina.
Það sem eftir er að gera:
- sprauta - ég er byrjaður á gula litnum og þar sem gulur þekur afskaplega illa (hefði kannski átt að klæða með gulu) þá þarf hann fjórar til sex umferðir. Það fer afskaplega lítið í hverri umferð, svo þetta verður ekki neitt hættulegt. Síðan koma tveir grænir litir og tveir brúnir.
- mála inaní og setja mælaborð á sinn stað
- sprauta með glæru ( kanski ?)
- kaupa flugmenn, mála þá og setja þá á sinn stað (kannski bara einn ?)
- kaupa hallastýrisservó og setja þau í
- líma öll stýri á
- búa til hljóðkút
- fá rafhlöður og setja í
- Jafnvægisstilla
Þetta er ekki tæmandi listi. Það er ótrúlegt hvað svona vill hlaðast upp.